1
Innlent

Heimir Örn aftur dæmdur fyrir umsáturseinelti

2
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

3
Innlent

Auglýsa eftir sjö prestum

4
Fólk

Halla stórglæsileg í afmælisveislu

5
Innlent

Líkir Sönnu við Zohran Mamdani

6
Landið

Ók rútu við Landmannalaugar án réttinda

7
Fólk

Óska eftir tilboðum í stórkostlegt einbýli við tennisvöll

8
Innlent

Bílvelta í Mosfellsbæ

9
Heimur

Opna bókabúð án bóka í New York

10
Heimur

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Til baka

„Í hvert skipti sem Epstein-málið kemur aftur upp springa sprengjur einhvers staðar í heiminum“

Franskur þingmaður rífur Donald Trump og ríkisstjórn hans í sig

Trump og Epstein
Epstein og TrumpÞingmaðurinn sparar ekki stóru orðin

Franski öldungadeildarþingmaðurinn Claude Malhuret hefur vakið mikla athygli með harðorðri gagnrýni á Donald Trump og ráðherra í stjórn hans. Í ræðu sem hann hélt nýlega lét hann falla fjölda umdeildra ummæla þar sem hann gerði lítið úr bæði stefnu og skipan ríkisstjórnarinnar. Birti hann ræðuna á YouTube-rás sinni með ensku tali.

Malhuret, sem er þekktur fyrir eldræður sínar, sagði meðal annars:

„Í hvert skipti sem Epstein-málið kemur aftur upp springa sprengjur einhvers staðar í heiminum og draga athyglina frá því. Sprengja meira til að vinna meira.“

Hann rifjaði upp fyrri samanburð sinn á forsetatíð Trump og hirð Nerós keisara en sagði að hann hefði vanmetið stöðuna:

„Ég hafði rangt fyrir mér. Þetta er kraftaverkahirð. bólusetningarandstæðingur, fyrrverandi heróínfíkill sem heilbrigðisráðherra,“ sagði hann og vísaði til Robert F. Kennedy Jr.

Malhuret hélt áfram og gagnrýndi fleiri ráðherra:

„Loftslags-efasemdarmaður efnahagsráðherra, áfengissjúkur sjónvarpsmaður sem varnarmálaráðherra,“ sagði hann og vísaði til Scott Bessent og Pete Hegseth.

Hann bætti við:

„Fyrrverandi umboðsmaður Katar sem dómsmálaráðherra. Aðdáandi Pútíns sem þjóðaröryggisstjóri,“ og vísaði þar til Pam Bondi og Tulsi Gabbard.

„Höllin verður að sirkus“

Í ræðunni vitnaði hann í tyrkneskt máltæki:

„Þegar trúður sest í höll verður hann ekki konungur, heldur verður höllin að sirkus.“

Hann sakaði einnig Trump um að hafa aukið hernaðaraðgerðir og sagði að frá stofnun svokallaðs „friðarráðs“ hefði Trump fyrirskipað fleiri árásir en Joe Biden á sínu kjörtímabili.

Malhuret sakaði Trump jafnframt um að nota embætti sitt til eigin ávinnings:

„Það er ekki eitt einasta land þar sem Trump hefur ekki nýtt sér aðstæður til að auðga sjálfan sig, án þess að gleyma fjölskyldu sinni,“ sagði hann og vísaði meðal annars til flugvélar sem Katar hafi gefið Trump.

Hann nefndi einnig fjárfestingar í Miðausturlöndum og meint áhrif á hlutabréfamarkaði sem dæmi um hagsmunaárekstra.

„Eitt slíkt mál hefði leitt til ákæruferlis hér,“ sagði hann og bætti við:

„En við erum ekki þar. Við erum í Bandaríkjum MAGA, þar sem opinber mál eru rekin í þágu einkahagsmuna.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan
Myndband
Heimur

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan

Þær fullyrðingar eru talsvert ýktar
Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalfals
Innlent

Asískir karlmenn dæmdir fyrir skjalfals

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu
Myndir
Fólk

Gríðarstór gersemi í Garðabæ til sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir slys í Hafnarfirði

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat
Heimur

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi
Innlent

Alnafni ráðherra dæmdur í fangelsi

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi
Heimur

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu
Heimur

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Opna bókabúð án bóka í New York
Heimur

Opna bókabúð án bóka í New York

Halla stórglæsileg í afmælisveislu
Myndir
Fólk

Halla stórglæsileg í afmælisveislu

Heimur

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan
Myndband
Heimur

Trump segist hafa gert „þjóðsöng samkynhneigðra“ aftur vinsælan

Þær fullyrðingar eru talsvert ýktar
Vilhjálmur og Katrín kynna glænýjan fjölskyldumeðlim
Myndir
Heimur

Vilhjálmur og Katrín kynna glænýjan fjölskyldumeðlim

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat
Heimur

Einn handtekinn eftir að hafa sett rottueitur í barnamat

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi
Heimur

Kieran Smyth ákærður fyrir morðtilraun á Norður-Írlandi

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu
Heimur

20 þúsund manns mættu á ólöglega teknóhátíð þrátt fyrir sprengjuhættu

Opna bókabúð án bóka í New York
Heimur

Opna bókabúð án bóka í New York

Loka auglýsingu