1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

6
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

7
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

8
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

9
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

10
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Til baka

Hittu Trump og Rubio í leiðtogaviku Sameinuðu þjóðanna

Funduðu með Selenskí og bandarískum ráðamönnum í New York

Þorgerður Katrín Kristrún
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar og Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra og formaður SamfylkingarMyndin er frá fundi SÞ á síðasta ári
Mynd: Stjórnarráðið

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flytur ávarp Íslands í leiðtogaumræðu áttugasta og fyrsta allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna í New York síðdegis í dag, laugardag. Hægt verður að fylgjast með flutningnum í beinni útsendingu á vefsíðu Sameinuðu þjóðanna.

Utanríkisráðherra hefur tekið þátt í fjölmörgum fundum og viðburðum í vikunni í tengslum við ráðherravikuna en jafnan er mikið um að vera þegar þingið er sett ár hvert.

„Á þeim umrótatímum sem við nú lifum er gríðarlega mikilvægt fyrir Ísland að taka virkan þátt í samstarfi þjóða og við gætum hagsmuna okkar Íslendinga með þeim hætti,“ segir Þorgerður Katrín inn á vef utanríkisþjónustunnar. Hún nefnir að hún hafi átt fjöldamörg tvíhliða samtöl í vikunni, bæði á formlegum fundum og á göngum þingsins, en leiðtogavikan bjóði upp á einstakt tækifæri til slíkra skoðanaskipta.

Stór mál á dagskrá: Úkraína og Miðausturlönd

Utanríkisráðherra og Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra voru viðstaddar opnun ráðherravikunnar á þriðjudag. Forsætisráðherra sat sérstakan leiðtogafund um tveggja ríkja lausnina milli Ísraels og Palestínu, og flutti Þorgerður Katrín ávarp á fundi ríkjabandalags um sömu málefni auk þess að sækja ráðherrafund stuðningsríkja Palestínuflóttamannaaðstoðarinnar (UNRWA).

Málefni Úkraínu voru sömuleiðis áberandi. Utanríkisráðherra sótti sérstakan viðburð um Krím-skaga þar sem Volodómír Selenskí Úkraínuforseti var aðalræðumaður, fylgdist með umræðum í öryggisráðinu og lýsti yfir stuðningi við Úkraínu á fjölmiðlaviðburði ásamt utanríkismálastjóra ESB, Kaja Kallas, og öðrum evrópskum ráðherrum.

Umhverfismál og mikilvægir fundir við bandaríska ráðamenn

Í vikunni stýrði Þorgerður Katrín fundi kvenleiðtoga og flutti ávörp um hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna og hættuna sem stafar af hækkun yfirborðs sjávar. Hún fundaði einnig með utanríkisráðherrum NB8-ríkjanna og Kanada, auk þess sem hún undirritar í dag samkomulag um stuðning Íslands við friðarumleitanir Sameinuðu þjóðanna (DPPA).

Tækifæri til viðræðna við bandaríska ráðamenn í New York voru góð og sótti Kristrún Frostadóttir móttöku á vegum Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Þá hitti utanríkisráðherra Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á fundi norðurslóðaríkja, og átti fundi með Christopher Landau varautanríkisráðherra og Allison M. Hooker aðstoðarutanríkisráðherra.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innlent

Toyota innkallar Lexus NX
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

Innköllunin nær til Lexus NX-bifreiða af árgerðunum 2021–2024 vegna villu sem getur komið í veg fyrir að nauðsynleg viðvörunarljós birtist við ræsingu.
Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Loka auglýsingu