1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

6
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

7
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

8
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

9
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

10
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Til baka

Höfundur South Park nafngreinir hópnauðgara við Cornell-háskóla

„Ég hef engin takmörk“

Toby Morton
Eltir uppi sakaða Cornell-nema:„Þetta er ekki að fara“
Mynd: Instagram

Fyrrverandi handritshöfundur sjónvarpsþáttanna South Park, Toby Morton, hefur hleypt af stokkunum vefsíðunni TheCornell7.org. Markmið síðunnar er að svipta hulunni af sjö fyrrverandi nemendum Cornell-háskóla sem sakaðir eru um alvarlega hópnauðgun í einkamáli. Morton segist engin takmörk fyrir því hversu langt hann mun berjast fyrir þessu, allavega þangað til að mennirnir verði dregnir til ábyrgðar.

Málið teygir sig aftur til októbermánaðar árið 2024. Tvítug kona, sem var meðlimur í kvennastúdentafélagi (sorority) við skólann, höfðaði nýverið einkamál þar sem hún sakar sjö meðlimi bræðralagsins Chi Phi um að hafa byrlað sér lyf og nauðgað sér klukkustundum saman á heimili bræðralagsins í Ithaca í New York-fylki. Í hinni ítarlegu 101 blaðsíðu kæru kemur meðal annars fram að mennirnir hafi neytt hana til að innbyrða eiturlyfið ketamín og boðið öðrum meðlimum bræðralagsins að taka þátt í ofbeldinu í gegnum samskiptaforritið Snapchat.

Cornell nauðgararnir
Mynd: Facebook

Engar refsingar of strangar að mati skopmyndahöfundarins


Toby Morton, sem er þekktur fyrir pólitíska satíru, keypti lénið TheCornell7.org ásamt fjölda annarra léna sem tengjast hinum sökuðu og stjórnendum Cornell-háskóla.

„Ég er meðvitaður um að ég er ekki blaðamaður, ég er bara satíristi,“ skrifaði Morton á samfélagsmiðla. „En það gerir mig mun hættulegri. Ég hef engin takmörk. Engin landamæri. Það er enginn sem segir mér að ég hafi gengið of langt.“ Hann bætti því við að hann væri þegar byrjaður að leita uppi upplýsingar um vinnustaði mannanna og hygðist setja upp auglýsingaskilti til að vekja athygli á málinu.

Háskólinn og sakborningar verjast ásökunum


Lögmenn fórnarlambsins, sem kemur fram undir dulnefninu Jane Doe, hafa gagnrýnt Cornell-háskóla harðlega og sakar skólann um að hafa tekið vægt á málinu. Samkvæmt þeim voru tveir stúdentar reknir úr skólanum en hinir fengu vægari refsingar, svo sem tímabundna brottvísun eða fyrirmæli um að sækja námskeið og skrifa ritgerðir.

Stjórnendur Cornell-háskóla vísa þessari gagnrýni alfarið á bug og segja fullyrðingar um vægar refsingar rangar og ábyrgðarlausar. Í yfirlýsingu frá skólanum segir að málið hafi verið rannsakað ítarlega af sérstakri nefnd og að enginn hafi sloppið með það eitt að skrifa ritgerð. Bræðralaginu Chi Phi var jafnframt lokað á svæðinu í kjölfar atviksins.

Lögmenn tveggja mannanna sem nefndir eru í málinu hafa einnig stigið fram og neita sök fyrir hönd umbjóðenda sinna. Annar þeirra fullyrðir að umbjóðandi sinn hafi aldrei snert konuna og hlakki til að verjast ásökununum fyrir dómi. Hinn segist ekki hafa tekið þátt í neinu kynferðislegu ofbeldi eða eiturlyfjaneyslu, heldur aðeins staldrað stutt við í herberginu og tekið þátt í samskiptum á Snapchat í hugsunarleysi.

Sakamálarannsókn enduropnuð


Enginn mannanna sjö hefur verið ákærður í sakamáli til þessa. Matthew Van Houten, héraðssaksóknari í Tompkins-sýslu, tilkynnti hins vegar nýverið að embættið væri að enduropna rannsókn málsins og stefndi að því að leggja sönnunargögn fyrir kviðdóm (grand jury) til að meta hvort grundvöllur sé fyrir sakamálaákæru. Saksóknari tók fram að ásakanirnar í einkamálinu væru talsvert frábrugðnar þeim framburði sem konan gaf lögreglu rétt eftir atvikið árið 2024.

Málið hefur vakið gríðarlega athygli og hörð viðbrögð á samfélagsmiðlum vestanhafs, þar sem tekist er á um ábyrgð háskóla í kynferðisbrotamálum og mörk þess hve langt einstaklingar mega ganga í netherferðum gegn fólki sem ekki hefur verið sakfellt fyrir dómstólum.

Matthew Ingalls og Jonathan Newell eru nafngreindir sem tveir af höfuðsakborðningunum.

Samkvæmt ritstjórnargrein stúdentablaðsins The Cornell Daily Sun hafa alls sjö einstaklingar verið nafngreindir í málinu:

  • Matthew Ingalls
  • Jonathan Newell
  • Winston Lee
  • Gillio Lopes
  • Diego Sarabia
  • Scott Norris
  • Scott Kretzschmar
Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Tuttugu og þriggja ára maður var handtekinn eftir að hafa mætt á tökustað í Brooklyn með stóran slátrarahníf og hótað starfsmanni kvikmyndateymisins.
„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio
Myndband
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Loka auglýsingu