1
Minning

Steingrímur Ingi Björnsson fyrrverandi landsliðsmaður í knattspyrnu látinn

2
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

3
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

4
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

5
Fólk

Stjarnan á Sólheimum

6
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

7
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

8
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

9
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

10
Heimur

„Viðbjóðsleg og óhugnanleg“ auglýsing hristir upp í ríkisstjórakosningum í Ohio

Til baka

VÍS varð undir í dómsal gegn öryrkja

Ungur maður slasaðist alvarlega á Langjökli

Langjökull
Jeppar á LangjökliMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Glen Berlin / Shutterstock.com

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ungur maður, sem slasaðist alvarlega þegar hann féll af dekkjaslöngu sem dregin var á eftir jeppa á Langjökli, eigi rétt á bótum vegna þriggja fjórðu hluta líkamstjóns síns.

Slysið varð 6. nóvember 2021 þegar maðurinn, sem þá var 19 ára, var í jeppaferð á Langjökli ásamt hópi fólks. Uppblásin dekkjaslanga úr dráttarvélardekki hafði verið fest aftan í jeppa og fólk úr hópnum látið draga sig á henni.

Maðurinn settist á slönguna ásamt tveimur gömlum skólafélögum sínum. Jeppanum var ekið á 20 til 25 kílómetra hraða á klukkustund þegar maðurinn féll af slöngunni og slasaðist illa á vinstri fæti. Síðar var varanleg örorka hans vegna slyssins metin 20 prósent.

VÍS hafði áður greitt manninum bætur vegna helmings tjónsins. Byggði tryggingafélagið á því að maðurinn hefði sýnt af sér stórkostlegt gáleysi með því að taka þátt í leiknum. Úrskurðarnefnd í vátryggingamálum hafði áður komist að sömu niðurstöðu.

Maðurinn sætti sig ekki við það og höfðaði mál þar sem hann krafðist fullra bóta.

Héraðsdómur taldi manninn hafa sýnt af sér stórkostlegt gáleysi. Vísað var meðal annars til þess að dekkjaslangan væri létt, gæti skoppað auðveldlega og hefði engin handföng.

Dómurinn taldi þó ekki rétt að skerða bætur hans um helming. Við matið var meðal annars horft til þess að jeppanum hefði verið ekið beint áfram á jafnsléttu og á tiltölulega litlum hraða. Þá taldi dómurinn líklegt að ökumaður jeppans hefði ekið yfir hjólför og ekki sýnt næga aðgát.

Niðurstaðan varð því sú að maðurinn bæri sjálfur fjórðung tjónsins en VÍS og eigandi jeppans bæru óskipta skaðabótaskyldu vegna þriggja fjórðu hluta þess.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu
Myndir
Fólk

Hlýlegt og mikið endurnýjað fjölskylduhús komið á sölu

Húsið var reist árið 1970
Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan
Heimur

Vopnaður maður truflaði tökur á nýrri kvikmynd með Michael B. Jordan

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn
Sport

Ætlar að birta eina brjóstamynd á dag þar til þjálfari Man Utd verður rekinn

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“
Viðtal
Fólk

„Þá komst ég að því að ég fæddist heilbrigður“

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð
Heimur

Ódýrt Icelandair-flug varð að 3.000 dala martröð

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára
Heimur

Anika Rashaun, fyrrverandi raunveruleikasjónvarpsstjarna, látin 34 ára

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins
Heimur

Leknir tölvupóstar grafa undan skýringum leiðtoga þýska hægriöfgaflokksins

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Innlent

Toyota innkallar Lexus NX
Innlent

Toyota innkallar Lexus NX

Innköllunin nær til Lexus NX-bifreiða af árgerðunum 2021–2024 vegna villu sem getur komið í veg fyrir að nauðsynleg viðvörunarljós birtist við ræsingu.
Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu
Innlent

Innkalla vinsæla og þekkta BMW-bíla vegna eldhættu

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun
Innlent

Hundur reif buxur vegfaranda fyrir utan matvöruverslun

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi
Innlent

Innköllun á Xpeng-bifreiðum vegna hættu á alvarlegu slysi

Rifust um launin og allt fór í háaloft
Innlent

Rifust um launin og allt fór í háaloft

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti
Innlent

Grafarvogsbúi dæmdur fyrir fíkniefni, vopn og peningaþvætti

Loka auglýsingu