Þriðjudagur 16. apríl, 2024
0.1 C
Reykjavik

Bankaráðið telur launahækkunina hóflega

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Það tók nokkurn tíma að fá viðbrögð frá þeim sem bera ábyrgð á rekstri Landsbankans eftir að greint var frá hinum miklu launahækkunum bankastjóra hans, Lilju Bjarkar Einarsdóttur, með birtingu ársreiknings í lok síðustu viku.

Bankaráð Landsbankans sem er ábyrgð fyrir því að skammta bankastjóranum laun, sendi þó frá sér tilkynningu á mánudag þar sem það sagði að hækkunin væri í samræmi við starfskjarastefnu bankans. Laun hennar hafi verið lægri en laun æðstu stjórnenda hjá öðrum stórum fjármálafyrirtækjum og því hefði þurft að hækka þau til að starfskjör Lilju Bjarkar væru samkeppnishæf.

Á þriðjudag komu svo fram viðbrögð Bankasýslu ríkisins. Í þeim fólst að senda stjórnum bæði Landsbankans og Íslandsbanka bréf þar sem óskað var eftir upplýsingum um launamál bankastjóranna og þess óskað að svör berist fyrir 19. febrúar næstkomandi.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, sendi einnig bréf sama dag þar sem óskað var eftir „því að stjórnir og Banka­sýsla rík­is­ins upp­lýsi fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið um það hvernig brugð­ist hafi verið við þeim til­mæl­unum sem beint var til þeirra með bréfi ráðu­neyt­is­ins frá jan­úar 2017, sem síðar var ítrek­að, og í hvaða mæli þau hafi verið höfð til hlið­sjónar við ákvörðun launa fram­kvæmda­stjóra. Hafi stjórnir ákvarðað fram­kvæmda­stjórum launa­hækk­anir umfram almenna launa­þró­un, er óskað eftir því að þær færi rök fyrir þeim ákvörð­unum með til­vís­unar til eig­anda­stefnu.“

Bjarni sagðist „óhress“ með launahækkun forstjóra Landsbankans í viðtali við Morgunútvarp Rásar 2 á miðvikudag og að það væri ekki annað að sjá en að tilmælin sem send voru í upphafi árs 2017 hefðu verið höfð að engu.

Umfjöllun Kjarnans má lesa í heild sinni á vef Kjarnans og í nýjasta tölublaði Mannlífs.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -