Laugardagur 20. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

E.coli smit í Efstadal: Böndin beinast að háþrýstiþvotti

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Matvælastofnun telur að háþrýstiþvottur á umhverfi nautgripa hafi að líkindum verið ein af smitleiðum STEC smitsins í Efstadal II í fólk.

Líkt og Mannlíf greindi frá á dögunum hefur stofnunin útilokað að e.coli smitið í Efstadal II hafi átt rætur að rekja til ísframleiðslunnar þar á bæ. Á annan tug barna veiktust vegna sýkingarinnar. Búið er að hreinsa allt svæðið og er reksturinn kominn á fullt á ný.

Nú telur stofnunin að háþrýstiþvottur á umhverfi nautgripa hafi verið ein af smitleiðunum. Á vef stofnunarinnar er athygli bænda og annarra framleiðenda vakin á því að úði frá háþrýstiþvotti á smituðu umhverfi geti dreift smitefnum og valdið sjúkdómi í dýrum og mönnum.

Á Íslandi og víðar er hefð fyrir því að nota háþrýstiþvott í landbúnaði. Í úðanum sem myndast við háþrýstiþvott geta verið sveppir, bakteríur, veirur, sníkjudýr eða önnur smitefni sem berast auðveldlega í fólk og dýr, t.d. með því að anda úðanum að sér. Auk þess leggst úðinn á yfirborðsfleti og mengar þá. Smit getur þá orðið við snertingu. Fólk í landbúnaði þarf að gera sér grein fyrir þessu og endurskoða starfsvenjur sínar þannig að komið verði í veg fyrir óþarfa dreifingu smits. Það sama getur átt við í matvælaiðnaði.

Lágþrýstiþvottur (20-22 bör) hefur kosti umfram háþrýstiþvott (um og yfir 100 bör) að því leiti að hvorki myndast úði né dreifast óhreinindi eins mikið, þannig er lágþrýstiþvottur betri kostur til þvotta í landbúnaði. Í landbúnaði eru óhjákvæmilega smitefni og ætíð ætti að gera ráð fyrir að smitefni geti verið hættuleg heilsu manna og dýra. Í öllu falli ætti ekki að nota háþrýstiþvott þar sem nálægð er mikil milli dýra og manna og/eða matvæla, því úðinn fer víða. Aldrei skal þvo gripahús með háþrýstingi þegar dýr eru inni og nota skal grímur til að verjast úðasmiti.

Sýking af völdum sníkjudýrsins Cryptosporidium parvum meðal dýralæknanema í Danmörku árið 2012 er gott dæmi um hvað getur gerst við háþrýstiþvott í smituðu umhverfi. Við frágang eftir verklega kennslu með kálfa sem voru með niðurgang var kennslurýmið háþrýstiþvegið. Allir sem þar voru inni veiktust, alls 24 manns. Smitið barst að öllum líkindum með úðanum sem myndaðist við þvottinn, sem viðstaddir önduðu að sér.

- Auglýsing -

Matvælastofnun hvetur bændur og þá sem eru ábyrgir fyrir matvælaöryggi til að skoða þrifa- og sótthreinsiaðferðir sem viðhafðar eru og leita ráða um tæki og efni sem í boði eru á markaðnum og henta vel til notkunar í landbúnaði og við meðferð matvæla. 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -