Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

MAST búið að vara við neyslu á „töfrakaffi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Matvælastofnun hefur sent frá sér tilkynningu þar sem varað er við neyslu á kaffi og kakó frá Valentus og hefur verið markaðssett sem töfra/undrakaffi. Vörurnar innihalda örvandi lyf.

 

Stofnuninni hefur borist nokkrar ábendingar um kaffi- og kakódrykki sem boðnir hafa verið til sölu á samfélagsmiðlum. Um er að ræða Valentus SlimROAST Optimum kaffi og Prevail SlimROAST kakó.

Matvælastofnun hefur skoðað upplýsingar um innihaldsefni vörunnar á sölusíðum og umbúðum og eftir samráð við Lyfjaeftirlit ÍSÍ komist að því að meðal innihaldsefna er örvandi lyf Beta-Phenylethylamin sem er afleiða phenethylamine. Efnið Phenethylamine og afleiður þess er á lista WADA (World AntiDoping Agency)  yfir bönnuð efni og er bannað í keppni.  

Samkvæmt. 11. gr matvælalaga nr. 93/95 mega matvæli ekki innihalda lyf eða lyfjavirk efni. Heilbrigðiseftirlit sveitarfélaga munu fylgja málinu eftir í samráði við Matvælastofnun, hvað varðar dreifingaraðila hérlendis. Þeir sem stunda dreifingu á matvælum teljast vera matvælafyrirtæki og eru þeir starfsleyfisskyldir hjá viðkomandi heilbrigðiseftirliti.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -