Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Uppáhaldspizza Flóna: O.M.G. komin á matseðil hjá Blackbox

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mikið fjör var á pizzastaðnum Blackbox í Mosfellsbæ síðastliðið föstudagskvöld. Tilefnið var mikið þar sem ný pizza var kynnt á matseðli, uppáhaldspizza rapparans Flóna.

 

„Við spilum mikið íslenskt hipphopp á staðnum og Flóni er fastagestur hjá okkur,“ segir Jón Gunnar Geirdal einn eigenda staðarins. „Pizzan fékk nafnið O.M.G., sem lýsir henni vel.“

Á pítsunni er meðal annars að finna ostablöndu og Óðals Búra, Sriracha, chorizo, rauðlauk, döðlur, sveppi, piparost og hvítlauk.

„Pizzan rann ljúft ofan í gestina okkar á föstudag,“ segir Jón Gunnar, en hún fór formlega á matseðilinn á laugardag.

Ljósmyndarinn Mummi Lú fangaði stemninguna á föstudag, en Flóni heilsaði þar upp á gesti og sat fyrir á myndum og tók að sjálfsögðu nokkur lög.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -