Fimmtudagur 25. apríl, 2024
9.8 C
Reykjavik

SJÓARINN #40 – Lífið að veði í sjávarháska við Hellissand: „Báturinn mölbrotinn að framan“.

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Gestur Sjóarans að þessu sinni er Guðmundur Guðmundsson, eða Gummi Fríðu eins og hann er betur þekktur.

Árið 1983 lenti Guðmundur í ævintýralegum sjávarháska á leiðinni í land eftir fiskerí við Öndverðarnes.  Um borð voru faðir hans sem var skipstjóri, bróðir hans sem var stýrimaður og svo vinur hans, Ómar. Hann var þá kokkur og var í gallanum í messanum þegar þeir sigldu á sker ekki fjarri Hellissandi í kolniða myrkri og hríðarveðri. Hann var í óða önn að vaska upp þegar skyndilega kom högg og vaskurinn hvarf.

Hann skilur enn ekki hvernig hann slapp „ég náði að skutla mér upp stigann og komst upp á dekk og báturinn var mölbrotinn að framan. Þegar ég kem upp á dekkið reyni ég að komast úr gallanum og það tók að mér fannst langan tíma. Ég sá þá að brúin var komin í kaf og hljóp að hlunningunni. Alveg ótrúlegt að maður hafi ekki dottið í sjóinn þá.“

Hann fór þá að skimast um eftir öðrum í áhöfninni og upp komu bróðir hans og Ómar en hann sá föður þeirra hvergi. Hann fór þá að leita leiða til að komast upp á skerið og eina leiðin sem hann sá var að tímasetja stökkið frá bátnum eftir því hvenær mastrið skall á skerinu. „Það var mikill öldugangur og mikið sog þannig að ég fór að telja þegar báturinn small á skerið með mastrið. Og svo bara taldi ég og svo tók ég bara sénsinn, hljóp eftir mastrinu og komst upp á skerið. Ég blotnaði ekki!“

Bróðir hans datt svo fyrir borð en sem betur fer lenti hann stjórnborðsmegin. Hefði hann lent á bakborða hefði öldugangurinn og sogið sennilega tekið hann. Honum tókst að synda að skerinu og klifra upp skerið á þaranum. Í kjölfarið féll félagi hans svo í sjóinn en bróður hans tókst að ná taki á hárinu á honum og draga hann upp. Þá var bara faðir hans eftir „þegar hann loksins komst út úr stýrishúsinu var hann orðinn örmagna, dettur beint í sjóinn og flækist í netinu. Það var ótrúlegt að horfa upp á þetta, hann skall svona tíu sinnum í klettinn. Hann var orðinn marinn og blár og allur blóðugur þegar að slitnar allt í einu frá nótinni, fer með soginu undir og fer hinumegin við skipið og við héldum bara að hann væri farinn en þá kemur hann allt í einu þar sem stefnið er. Bróðir minn sér hann, nær taki og dregur hann upp.“

- Auglýsing -

Enn ein ótrúleg lukkan varð þegar björgunarbáturinn kom siglandi upp skerið sem varð til þess að þegar björgunaraðilarnir komu á svæðið gátu þeir skotið línu til þeirra, þeir gátu þá blásið bátinn upp og svo ferjaðir í var einn af öðrum.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -