Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Aukinn áhugi á matjurtargörðum inn í hverfum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í Grasagarði Reykjavíkur í Laugardal verður í sumar boðið upp á ýmsa fræðslu sem tengist matjurtaræktun og hentar vel þeim sem langar að leigja matjurtagarð í borginni. Áhugasamir ættu að merkja við þriðjudaginn 7. júní í dagatalinu en þá verður boðið uppá:

„Hollráð í matjurtagarðinum“.

Þar býðst þátttakendum að fræðast um sáningu, útplöntun og umhirðu krydd- og matjurta. Auk þess verður hægt að læra um smádýrin í matjurtagarðinum, safnhaugagerð, moltugerð í eldhúsinu með ánamöðkum og sýringu matarleifa með Bokashi-tunnu. Hægt verður að koma við í Grasagarðinum hvenær sem er á milli kl. 17-18.30.

Opnað verður fyrir umsóknir um matjurtagarða þriðjudaginn 15. mars. Um 600 matjurtagarðar eru leigðir út, þar af eru 200 í Skammadal. Matjurtagarðarnir eru í boði í Vesturbæ, Fossvogi, Laugardal, Árbæ, Grafarvogi og Kjalarnesi við Fólkvang, sem bættist við í fyrra. Matjurtagarðarnir verða opnaðir 1. maí, segir á vef Reykjavíkur.

Garðarnir verða merktir. Vatn er aðgengilegt á öllum svæðum. Garðáhöld, plöntur og útsæði fylgja ekki með görðunum. Fyrir byrjendur má geta þess að algengast er að fólk rækti kartöflur og allskonar kál og rófur. Einnig er gott að hafa í huga að hægt er að nálgast forræktað grænmeti í allflestum gróðrastöðvum.

Leigugjöld ársins 2022 fyrir áhugasama eru 6.000 kr. fyrir garðland í Skammadal (u.þ.b. 100 fermetrar) og 5.000 kr. fyrir garð (u.þ.b. 20 fermetrar). Kassar í Grafarvogi, Árbæ og Kjalarnesi verða á kr. 4.000 kr. kassinn (8 fermetrar). Úthlutun garða verður afturkölluð hafi greiðsla ekki borist á eindaga.

- Auglýsing -

Umsóknir sendist á netfangið [email protected] en nánari upplýsingar er að finna á upplýsingasíðu matjurtagarða.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -