Fimmtudagur 28. mars, 2024
-2.2 C
Reykjavik

Berglind Berndsen brillerar – Stórglæsilegt einbýli í Kópavogi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Innanhúshönnuðurinn Berglind Berndsen hannaði glæsilegt eldhús, baðherbergi og forstofu í vönduðu einbýli í Kópavogi. Húsið sem nú er á sölu, stendur við Iðalind 1, og hefur stórbrotið útsýni bæði til suðurs og vesturs. Lindahverfið er eitt það vinsælasta á fasteignamarkaðnum í dag en mikil eftirspurn er eftir eignum í hverfinu. Lind fasteignasala er með eignina, sem er 215 fermetrar, á skrá hjá sér.

Arinn í borðstofu

Arinninn í borðstofu er glæsilegur og vekur athygli enda hálfgerður skúlptúr. Mött áferðin fer vel með ljósum flísum á gólfi.

Rúmgóð borðstofa

Borðstofan er rúmgóð og björt með glæsilegum hljóðeinangrandi viðarklæddum vegg. Mikil lofthæð er í húsinu og veggurinn því bæði falleg og góð lausn til þess að dempa hljóð.

eldhús

Berglind innanhússhönnuður kann vel til verka, enda ein sú vinsælasta í bransanum. Eldhúsið hefur bæði frábært skápa- og borðpláss – eflaust draumaeldhús margra. Vegleg marmaraplata er á borðinu og gert er ráð fyrir vínkæli í eyju. Ofn og gufuofn eru frá Miele.

Horft yfir í borðstofu

Þessi ljós setja punktinn yfir I-ið.

Baðherbergi

Baðherbergið er glæsilegt með flísum á gólfi og veggjum. Innréttinginn er með  marmaraplötu, tveimur vöskum og innbyggðum vola blöndunartækjum.

- Auglýsing -
Stofan

Hlýir litir og teppi á gólfi í stofunni.

Garðurinn á sumardegi

Sannkallaður lúxus í þessum garði. Áhugasamir geta nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu fasteignasölunnar.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -