Föstudagur 29. mars, 2024
-4.2 C
Reykjavik

Birkir Blær sigraði sænska Idolið!

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Tónlistamaðurinn frá Akureyri, Birkir Blær Óðinsson mætti í kvöld söngkonunni Jacqueline Mossberg Mounkassa í Avicii Arena höllinni í Stokkhólmi þar sem þau öttu kappi í sænska Idolinu. Birkir Blær sigraði!

Vísir sagði frá þessu í kvöld en Birkir Blær sagði í samtali við Vísi í dag að hann hefði sofið lítið í nótt af spenningi. Hlaut Birkir Blær glæsilegan vinning en hann fær plötusamning við Universal útgáfuna.

Samkvæmt Vísi hefur söngvarinn knái heillað dómara keppninnar algjörlega upp úr skónum hvað eftir annað og áhorfendur virðast elska hann líka, ef marka má símakosningarnar. Stórfjölskylda Birkis var í salnum í kvöld, meðal annars kærasta hans og móðir en hún flaug til Svíþjóðar frá Íslandi í morgun.

Mannlíf óskar Birki Blæ innilega til hamingju með sigurinn!

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -