Föstudagur 24. janúar, 2025
2.7 C
Reykjavik

Brynjar ætlar að hætta að ljúga: „Það ískrar í Soffíu af tilhlökkun“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
„Ég hef haft dágóðan tíma í haust til að hugsa um lífið og tilveruna og framtíðina ekki síst. Niðurstaðan er sú, eftir mikla yfirlegu, að tími sé kominn til breytinga. Ætla byrja á að hætta að segja ósatt öllum stundum. Það er nefnilega ekki þjóðsaga að nefið stækki með hverri lygi. Tel líkur á að það takist eftir brotthvarf úr stjórnmálum.“ Þannig hefst Facebook-færsla Brynjars Níelssonar sem hljómar eins og snemmbúin áramótaheit.

Segist Brynjar ennfremur ætla að hætta allri neikvæðni og leiðindum sem hann segir hafa „heltekið“ hann síðasta áratuginn.

„Stefni á að losa mig undan neikvæðni, þusi og almennum leiðindum, sem hefur heltekið mig síðasta áratuginn. Mér hefur verið bent á að lesa Biblíuna til að skynja samkennd, mannúð og mikilvægi kærleikans og fyrirgefningarinnar. Það dugi skammt að leita til rándýrra sérfræðinga í þeim efnum. Það er trú margra að undir yfirborðinu sé hægt að finna ljúfling en það þurfi kannski að kafa djúpt með súrefniskút til að finna hann.“

Í næstu orðum sínum segist Brynjar ætla að hætta öllu einelti á samfélagsmiðlunum en notar á sama tíma tækifæri á að skjóta á konu sem hann hefur oft skotið á í gegnum tíðina:

„Ég hyggst láta af öllu einelti á samfélagsmiðlunum. Jafnvel láta þá miðla alveg eiga sig. Kannski gerist það sjálfkrafa eftir að Píratar duttu af þingi. Eineltistilburðir mínir hafa nefnilega mest farið í taugarnar á Soffíu fyrir utan klæðaburð minn og útlit. Það yrði mjög kostnaðarsamt fyrir mig að bæta klæðaburð og útlit og sennilega þyfti landssöfnun undir stjórn Semu Erlu til að ná fjármunum sem til þarf og hugsanlega aðkomu læknavísindanna.“

Brynjar segir að mikilvægasta breytingin sem hann verður að fara í sé líkamleg heilsa hans.

„Mikilvægast fyrir mig er sennilega átak í að bæta líkamlega heilsu mína. Ég hef illa tollað á líkamsræktarstöðvum. Er of viðkvæmur fyrir óvæntum hljóðum þar. Upplifi mig alltaf sem eitthvert aðskotadýr sem allir glápa á og glotta. Mér skilst að ástæðan sé sú að óþekkt sé að menn mæti þar í hálfrar aldar gömlum íþróttafötum.“

Að lokum segir hann að það hlakki í eiginkonunni vegna komandi breytinga.

„Ef þetta gengur eftir kemur nýr og betri maður til leiks á nýju ári. Það ískrar í Soffíu af tilhlökkun.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -