Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Friðrik Ómar og Svavar gefa út nýtt lag – Ástin birtist í öllum formum og myndum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ástin getur verið allskonar, birst í öllum formum og myndum og ekki síst getur sterk tenging myndast með skrifuðum orðum.

Það á svo sannarlega við sögu lagsins Orðin mín sem tónlistarmennirnir Svavar Viðarsson og Friðrik Ómar gáfu út nú á dögunum.

Orðin mín fjallar um tvo einstaklinga sem að eru að kynnast og tengjast sterkum böndum en hafa aðeins möguleika á samskiptum með skrifuðum orðum.

Þá er svo mikilvægt að hlusta á innri röddina, þessa sterku tilfinningu sem segir svo margt og  láta hjartað alltaf ráða för og ekki streitast á móti  þar sem lífið er of stutt til annars.

Lagið kemur inn á mikilvægi þess að treysta innsæinu og trúa á ástina en einnig fylgja hugsanir um hvaða ólíku stefnu lífið taki ef maður beygir til hægri eða vinstri.

Það má svo sannarlega segja að margir séu forvitnir um hvern sagan fjallar og hvert hún leiðir en hægt er að hlusta á lagið ‘’Orðin mín’’ hér og leyfa huganum að reika um söguþráð lagsins.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -