Laugardagur 20. apríl, 2024
8.1 C
Reykjavik

Fríir tónleikar vegna útgáfu smáskífu: „Með einn fótinn í raunveruleikanum og hinn í draumheimum“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mannlífið iðar í takt við hækkandi hitastig eins og sjá má á hinum ýmsu bæjarhátíðum og skemmtilegheitum á landinu. Næstkomandi laugardag mun Smekkleysa Plötubúð í samstarfi við STAK og Sumarborgir, bjóða upp á fría tónleika með systkinunum Önnu Sóley og Mikael Mána.

Tónleikarnir munu fara fram í Smekkleysu Plötubúð við Hjartatorg í miðbæ Reykjavíkur. Hefjast þeir klukkan 14:00 og standa yfir í um 40 mínútur.  Tilefni tónleikanna er útgáfa smáskífunnar Brighter Day sem Anna Sóley gefur út á morgun, 22. júlí. Lagið kemur út á öllum helstu streymisveitum og er forsmekkur af væntanlegri breiðskífu sem kemur út í haust undir nafninu Modern Age Ophelia. Verður platan gefin út af Smekkleysu og mun innihalda lög og texta eftir Önnu Sóleyju. Á plötunni koma saman mismunandi stílar, módern jazz, grúf, popp og alþýðutónlist, ásamt textum „með einn fótinn í raunveruleikanum og hinn í draumheimum,“ líkt og segir í kynningartexta frá Smekkleysu.

Hér er Facebook-hlekkur á viðburðinn: https://fb.me/e/2SvK61hoF

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -