Föstudagur 29. mars, 2024
4.8 C
Reykjavik

Mér er alveg sama um hina: Timothy Dalton er minn James Bond

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Timothy Dalton er minn James Bond og ef ég heyri einu sinni enn að Sean Connery sé hinn eini sanni James Bond þá gubba ég upp í mig og kyngi því öllu.

Hinn eini sanni James Bond er ekki til – bara uppáhalds.

Þegar Timothy Dalton tók við hlutverki James Bond af Roger Moore var hann svo ferskur að það brakaði í honum; frumraunin frá árinu 1987, The Living Daylights, er uppáhalds Bond-myndin mín, ásamt hinni sem hann lék í, Licence to Kill.

En það var ekki bara Dalton að þakka þetta með ferskleikann, heldur var farið að slá hressilega í Roger Moore – hann var úldnari í View To A Kill (skemmtileg mynd) en Sean Connery (í slöppustu Bond-myndinni) í Diamonds Are Forever.

Dalton var andstaða Moore (það liggur beinast við að bera þá saman).

- Auglýsing -

Moore túlkaði Bond sem mjúkan glaumgosa með allt á hreinu sem skyrpti út úr sér fimmaurabröndurunum um leið og hann barðist við illfygli sem áttu það sameiginlegt að þrá heimsyfirráð, á meðan Dalton var glerharður og mun líkari þeim karakter sem Ian Fleming skapaði upphaflega í bókunum.

Dalton dró upp nýja mynd af njósnaranum – hans Bond er alvarlegur en ekki leiðinlegur, eins og flest alvarlegt fólk er. Hann barðist við trúverðuga andstæðinga – vopnasala og eiturlyfjabaróna, og var í uppreisn gegn yfirmönnum sínum.

Í hinni Bond-myndinni sem Dalton lék í, Licence To Kill, frá árinu 1989, er Bond í hefndarhug og gefur skít í M og heldur í persónulega hefndaraðgerð þar sem engu er eirt.

- Auglýsing -

Dalton dregur upp mynd af njósnara sem líður ekki vel með öll drápin sem hann hefur framið; hann er öróttur að innan – fallegur að utan – og stútfullur af dimmum hugsunum – þreyttur, en samt til í einn bardaga í viðbót. Ekki hægt að biðja um meira.

Dalton brýndi hnífana og varpaði ljósi raunsæis á hlutverkið, en Moore var rómantískur, sem er glatað.

Þess má geta að Dalton lék áhættuatriðin sjálfur í myndunum tveimur; fór fram á ystu brún, eins og karakterinn upphaflega.

Timothy Dalton er eins raunverulegur sem James Bond og mögulegt er.

Timothy Dalton er minn James Bond.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -