Tvíeykið Myrkvi gaf út spánýtt lag í dag.
Það eru þeir Yngvi Holm og Magnús Thorlacius sem mynda tvíeykið Myrkvi en þeir hafa að undanförnu verið að vekja athygli með tónlist sem Arnar Eggert Thoroddsen tónlistasérfræðingur kallar „Vinalegt, aðlaðandi, þægilegt“ “
Að sögn Myrkva er lagið Self-Pity „gítardrifið tundurskeyti sem sækir innblástur í upphaf aldarinnar. Skammdegið, hugsýkin og bölsýnin eru sprengd upp á yfirborðið með þessari tveggja og hálfs mínútna bombu.“
Þetta er önnur smáskífan af komandi breiðskífu Myrkva og Yngva Holm en þeir kumpánar hafa ýmsa fjöruna sopið í gegnum tíðina. Týndu árin og hljóðheimur uppvaxtaráranna, sitt hvorum megin við aldamótin, brutust út við gerð plötunnar að sögn þeirra félaga.