„Getur þú giskað á hver hluturinn er?“ er yfirskrift myndskeiða sem birt eru af bandarískum bráðalækni á samfélagsmiðlinum Facebook. Í myndskeiðinunum sýnir læknirinn, sem starfar á bráðamóttöku, röntgenljósmyndir sem teknar hafa verið af skjólstæðingum sem leitað hafa á bráðarmóttöku vegna aðskotahluta sem fests hafa í afturenda þeirra. Hann leiðir áhorfendur áfram og greinir frá hvað leynst hafi í rössunum.
Alls kyns hlutir virðast hafa villst í rassa sjúklinganna og tekið sér bólfestu.
Mannlíf hefur tekið saman nokkrar af röntgenmyndunum úr myndskeiðunum og geta lesendur spreytt sig á hver hluturinn er. Svörin eru að finna neðst í fréttinni.









Mynd: 1) Eggaldin 2) Ljóspera 3) Sexkantur 4) Gúmmíslanga 5) Heyrnatól með svampi 6) Kúrbítur 7) Saltstaukur 8) Stjörnuskrúfa 9) Vatnsflaska með áföstum tappa sem hefur verið fjarlægður