Eins og alþjóð veit orðið, skrifar Anna Kristjánsdóttir launfyndnar dagbókarfærslur frá Tenerife og birtir á Facebook, en þangað flutti hún fyrir nokkrum árum. Hina spænsku eyju kallar hún Paradís og er nokkuð tíðrætt um veðurfarið enda lesendahópurinn íslenskur og því áhugasamur um slíkt.
Í færslunni segir Anna að sumarið sé farið, þrátt fyrir að hafa haldið því fram fyrir nokkrum dögum að það væri komið til Paradísar. Í gær segir hún að hitinn hafi rétt slefað upp í 22 gráðurnar. Þá talaði hún einnig um vinnu verkamanna við að koma upp nýju sóltjaldi eftir að hið fyrra hafði fokið í vetur og um Eric nokkurn sem dreymir um að strauja hár hennar.
Sjón er sögu ríkari:
„Dagur 1331 – Sumarið er farið.