- Auglýsing -
Svala Björgvins naut lífsins í Eyjum með kærastanum, hinum unga Alexander.
Poppsöngkonan litríka, Svala Björgvins birti í gær rómantíska ljósmynd frá Þjóðhátíðinni í Vestmannaeyjum, á Instagram-reikningi sínum. Þar sést hún í innilegum ástaratlotum með kærasta sínum, Alexander Alexandersson en aldursmunur þeirra hefur vakið athygli en Svala er 21 ári eldri en Alexander. Við myndina setti Svala myllumerkið #dalurinnokkar en myndina tók Sigurbjörg Magnúsdóttir.
Svala gaf annars út á dögunum smáskífuna Bones sem hefur heldur betur slegið í gegn. Hér fyrir neðan má hlusta á það og dilla bossanum.