- Auglýsing -
Svala Björgvins er á fullu við að taka upp nýja tónlist um þessar mundir.
Um síðustu helgi vakti söngdíva Íslands, Svala Karítas Björgvinsdóttir athygli á Söngkeppni sjónvarpsins en þar tók hún að sér nýtt hlutverk við að taka viðtöl við keppendur. Farnaðist henni starfið með prýði.
Í gær birti hún svo í story hjá sér á Instagram myndskeið úr stúdíói þar sem hún sagðist vera að vinna að nýrri tónlist. Þá birti hún einnig ljósmynd af sér á Instagram og skrifaði við hana: „Ný tónlist-stillingin á (e. New music mode on)“. Það er sem sagt nóg að gera hjá söngkonunni jákvæðu.

Ljósmynd: Instagram-skjáskot

Ljósmynd: Instagram-skjáskot