Þórunn Antonía Magnúsdóttir var í samstarfi með Adam og Evu á Instagram í gær.
Söngkonan hæfileikaríka, Þórunn Antonía er með bráðskemmtilegan Instagram-reikning en þar eru hún dugleg að birta alls konar sjálfur og myndskeið sem aðdáendur hennar hafa gaman af. Eins og aðrir áhrifavaldar fer hún stundum í samstarf með fyrirtækjum en þá situr hún til dæmis fyrir á myndum merktum fyrirtækjunum, sem svo birta þær í story. Nýjasta samstarf Þórunnar Antoníu er við Adam og Evu Megastore sem sérhæfir sig í hjálpartækjum ástarlífins og kynþokkafullum undirfötum.
Það var einmitt undirfötin sem Þórunn Antonía auglýsti á Instagram og virtist hún skemmta sér konunglega enda skemmtilegt verkefni. Samkvæmt story hjá henni, passaði ekki allt við hana á meðan annað fannst henni smellpassa. Hún birti svo nokkrar ljósmyndir þar sem hún skrifaði undir orðin „Stay sexy or die“ sem hljómar talsvert betur á ensku en á hinu ástkæra ylhýra, sem myndi útleggjast nokkur veginn svona: „Vertu áfram kynþokkafull/ur eða deyðu“.

Ljósmynd: Instagram-skjáskot

Ljósmynd: Instagram-skjáskot