Miðvikudagur 24. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Tilnefndur meðal 8 bestu rithöfunda í heimi – „Hefur ekki staðið á torgum og kallað eftir hrósi“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Rithöfundurinn Gyrðir Elíasson var í gær tilnefndur sem einn af 8 bestu erlendu rithöfundunum á hinum virtu frönsku bókmenntaverðlaunum Prix Médicis. Tilnefninguna hlýtur hann fyrir bókina Sorgarmarsinn (eða Requiem á frönsku) og verður sigurvegarinn tilkynntur þann 7. nóvember næstkomandi.

Verðlaunin frönsku voru fyrst veitt árið 1958 og eru þau veitt rithöfundum sem „hafa ekki fengið nægilega verðskuldaða athygli“, eins og það er orðað í lýsingu. Andrés Skúlason, frændi Gyrðis, fagnar sínum manni vel og innilega þegar tilnefningin varð ljós.

Mikið er ég stoltur af einum mínum besta frænda og vini Gyrði Elíassyni sem hefur helgað líf sitt ritlistinni. Gyrðir hefur ekki staðið á torgum og kallað eftir hrósi, hann hefur einfaldlega haldið sínu striki hugsandi og hlédrægur, hefur aldrei sóst eftir sviðsljósinu sem er þó alsiða að sumir rithöfundar hafa nærst á.

Ég man eins og í gær þegar við bjuggum á sínum tíma í sama húsi hann á efri hæðinni og ég á neðri þá var hann að taka sín fyrstu alvöru skref á ritvellinum og ég man hvað hann þá beið spenntur en þó yfirvegaður eftir ritdómi ljóðabókarinnar „Bak við maríuglerið“

Ferill Gyrðis er hreint ótrúlegur og nær samfelldur og afköstin gríðarlega mikil og það magnaða er að hann hefur alltaf náð að endurnýja sig skapa nýjar persónur og hugarheim með sínum einstaka stíl sem engin hefur náð að leika eftir.

Það er því hreint stórkostlegt að Gyrðir skuli nú hafa fengið enn eina viðurkenninguna á erlendum vettvangi og nú er hann hvorki meira né minna en tilnefndur meðal 8 bestu rithöfunda í heimi og úrslitin kynnt þann 7. nóvember næstkomandi. Hvort sem þessi vegferð leiðir á endanum með að Gyrðir hljóti Nóbelsverðlaunin á bara eftir að koma í ljós en engin Íslendingur hefur komist lengra á þessum vegi enn sem komið er en Halldór Kiljan Laxnnes og við skulum hafa það í huga að það er úr mörg þúsundum skálda er að velja. Innilega til lukku með þessa glæstu tilnefningu elsku frændi. Þú átt þetta svo innilega skilið

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -