Miðvikudagur 17. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Tvö glæný lög með Miomantis: „Ég horfi á þetta sem einskonar þerapíu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Hljómsveitin Miomantis hefur nú gefið út tvö ný lög sem verða á væntanlegri LP plötu bandsins. Mannlíf ræddi við Davíð Mána Jóhannesson gítarleikara hljómsveitarinnar.

Davíð Máni Jóhannesson, Zophonías Tumi Guðmundsson, Bjarmi Friðgeirsson
Ljósmynd: Aðsend

Þerapía

Fyrra lagið heitir Rats Encaged og er af væntanlegri LP plötu Miomanis sem áætlað er að komi út árið 2023. Er um að ræða smáskífu. Lagið er samið, tekið upp, mixað, masterað og spilað af Miomantis en verkefnið er styrkt af upptökusjóði STEF.

„Ég man örlítið eftir hvernig þetta var samið. Ég samdi aðal riffið og fannst það nett. Samdi svo fleiri riff sem væru svipuð en með mjög subtle breytingum í lokin á riffinu. Og bridge part sem var clean gítar. Fannst þetta svalt og hafði mér verið sagt að fara nú að bæta við söng og texta í lögin okkar. Svo ég settist við tölvuna mína. Opnaði WORD. Og lét hugann flæða,“ sagði Davíð Máni í samtali við Mannlíf. Hélt hann svo áfram: „Lagið kemur frá reiðum stað og fjallar um þunglyndi og sjálfsvígshugsanir. Og já það er kannski ekki beint fyrir krakka að hlusta á en þetta er umfjöllunarefni sem skiptir máli fyrir mig, enda hef ég marg oft verið á svona stað. Fundist ég vera fastur í búri. Svona eins og rotta. En umfjöllunarefni um svona finnst mér oft vanta í íslenska tónlist sem er vanalega „happy go lucky.“ sem er ekki slæmt. En fólk þarf líka að heyra að raunveruleikinn er ekki bara dans á rósum.„

Davíð sagði að í upptökuferlinu hafi hann notast við þrjá mismunandi gítara „og var tekið upp slatta af rásum.“ Davíð hélt áfram að útskýra ferlið: „Og einnig layeruðum við allskonar hljóðfæri sem við fundum á upptökusvæðinu í bridge kaflanum sem ég talaði um hér áður. Finnst mér þetta eitt sterkasta lagið okkar. Einnig höfum við verið að test runna þetta lag á tónleikum. Og tekur fólk vel í það. Ég er ánægður með riffin, og Bjarmi og Tumi höfðu líka slatta af tíma til að semja sína parta sem gerir lagið dínamískt og þétt.“

Seinna lagið þyngra

Seinna lagið segir Davíð vera þyngra og dimmara.

„Seinna lagið, Rotting Roses Turned To Grey er dimmara lag. En það kom til með þegar ég tók upp gítarinn á köldum, skýjuðum þokudegi. Gítarinn var stilltur öðruvísi en vanalega. Og byrjaði ég að semja. Lagið er í raun mjög opið. A moll, G og F og E. Þetta leyfði Bjarma og Tuma að semja sína parta í laginu og gera það þétt og dínamískt og soltið meira creative á bassanum og trommum, og að sjálfsögðu gaf það færi á góðar söng melodíur og texta.“

En um hvað er textinn?
„Textinn er svona talaður í myndlíkingu og er í raun um þunglyndi eins og fyrra lagið, nema þarna er sviðsmyndin öðruvísi á þann hátt að þarna er manneskjan á botninum. Erfitt að komast upp aftur. Og ég hef verið á þeim stað líka. En ég horfi á þetta sem einskonar þerapíu. Ef ég sem um erfiðar tilfinningar losa ég um og hef pláss til að vera ánægður í hversdagsleikanum. Ég er ánægður með bæði lögin og finnst þau bestu sem við höfum sett út, enda munu fleiri hlusta eflaust fyrst það er texti. Ég er enginn menntaður, né góður söngvari, en ég vil syngja mína texta sjálfur, það er þannig sem ég virka. En er ég ánægður með útkomuna.“

Finnur til ábyrgðar gagnvart hlustendum sínum

Eins og fram kom hér að ofan verða bæði þessi lög á vænanlegri LP plötu á næsta ári. En er einhvert heildarhugmynd eða konsept á plötunni eða er hvert lag með sína stöku sögu?

„Mörg lögin eru um svona erfið mál. Við erum með eitt lag um stríð og hörmungar þess og sjálfselskuna í því sem pólitíkin hefur, auðvitað á svona ekki að gerast og þarf að vekja athygli á því. Annað lagið er um fíkn í eiturlyf eða alkohól og er ég sjálfur edrú fíkill þannig það kom til eftir erfiðan dag þar sem ég var fastur í löngun. En svo eru fleiri lög. Þetta ætti að gefa í skyn hverju má búast við og hlakka ég mikið til. Hvernig ég horfi á það eins og ég sagði með hvernig þetta er þerapí fyrir mig þá held ég að svona textar geti verið þerapí fyrir aðra að vita að þeir eru ekki einir í svona baráttu. Og finnst mér, sem tónlistarmaður, þá hef ég ákveðin málstað til að koma svona erfiðum hlutum á framfæri og finnst mér það vera pínu mín ábyrgð,“ sagði Davíð við blaðamann Mannlífs.

- Auglýsing -

Er eitthvað að lokum sem þú vilt segja Davíð?

„Við viljum þakka MBS kollektívinu fyrir sinn kærleika og umburðarlyndi og lán á hljóðnemum oo fleiru. Einnig mælum við að leggja þeim hjálparhönd þar sem þeir lentu í vatnstjóni nú á dögunum vegna óveðurs en það er hægt að gera hér.:
Einnig viljum við þakka Hinrik starfsmanni Ungmennahússins Rósenborg fyrir að veita okkur aðgang, skilning og hjálp.“

Meðlimir hljómsveitarinnar eru þeir Davíð Máni Jóhannesson: Söngur/Gítar
Zophonías Tumi Guðmundsson: Bassi
Bjarmi Friðgeirsson: Trommur

Hægt er að hlusta á lögin tvö á Spotify með því að ýta á eftirfarandi hlekki:

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -