Fimmtudagur 18. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Fljótlegar kotasælubollur – Uppskrift sem hægt er að leika sér með

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Þjálfarinn Sigrún María Hákonardóttir deilir hér uppskrift að fljótlegum bollum sem hún segir ofureinfalt að gera.

„Þessi uppskrift er svo einföld en til þess að hún verði sérstaklega góð er gott að eiga blandara eins og Nutribullet eða matvinnsluvél. Uppskrift sem er æðislegar í brunchinn og sem millimál. Börnin elska líka þessar bollur og er hægt að leika sér með uppskriftina og gera hana að sinni með því að bæta við allt að 1/2 dl af fræjum eða hnetum sem þér finnst vera góðar,“ segir Sigrún.

Kotasælubollur

4 egg eða 240 gr eggjahvítur úr flösku
500 gr kotasæla (stór dós)
400 gr hafrar (hakkaðir þannig þeir verða að mjöli eða mjög fínir hafrar)
2 tsk lyftiduft
1 tsk sjávarsalt
auka: allt að 1/2 dl af fræjum eða hnetum, t.d. chia fræjum, sesamfræjum, fræblöndu, brotnum kasjúhnetum, saxaðar möndlur, rúsínum

Aðferð

Hitaðu ofninn á 200 gráður blástur. Í Nutribullet, matvinnsluvél eða sambærilegum blandara blandaðu saman egg eða eggjahvítur og kotasælu, settu í skál.

- Auglýsing -

Í Nutribullet, matvinnsluvél (eða sambærilegum blandara) blandaðu saman hafrana þannig þeir verði að mjöli, settu í skál (án þess að blanda saman). Bættu við lyftidufti og salt (fræin/hneturnar líka ef þú vilt prófa uppskrifina svoleiðis).

Blandaðu þurrefnunum lítillega saman með sleikju og hrærðu síðan öllu saman þannig þetta verði að deigi. Deigið er frekar blautt og gæti verið gott að vera í hönskum eða strá smá hveiti á hendurnar.

Mótaðar 9-11 bollur og bakaðu á 200 gráðu blæstri í 18-22 mín.

- Auglýsing -
Sigrún segir bollurnar vera hið fullkomna millimál.

„Ef þú gerir 11 bollur er hver bolla í kringum 201 kcal, 13 gr prótein, 23gr kolvetni, 6,3 gr fita, 3,6 gr trefjar. Og ef þær klárast ekki strax er hægt að geyma þær í kæli eða frysti. Ef þær eru geymdar í frysti er gott að vera búin að skera þær í tvennt svo þú getir auðveldlega ristað þær þegar þú færð þér næst. Góða með smjör og osti, jafnvel agúrku eða sultu ofan á líka. Ég mæli með að prófa.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -