Föstudagur 19. apríl, 2024
-0.9 C
Reykjavik

Bergrún Íris, Bergþóra og Sigríður Kristín hlutu Fjöruverðlaunin

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Fjöruverðlaunin, bókmenntaverðlaun kvenna, voru afhent í fjórtánda sinn við hátíðlega athöfn í Höfða í gær. Þetta er jafnframt í sjötta sinn síðan borgarstjóri Reykjavíkur, bókmenntaborgar UNESCO, gerðist verndari verðlaunanna. Dagur B. Eggertsson gesti velkomna og afhenti verðlaunahöfum blóm. Verðlaunahafar fá verðlaunagripi gerða af listakonunni Koggu.

 

Bergrún Íris Sævarsdóttir teiknari og rithöfundur vann verðlaunin í flokki barna- og unglingabókmennta fyrir Kennarinn sem hvarf (Bókabeitan).

Bergþóra Sveinbjörnsdóttir vann verðlaunin í flokki fagurbókmennta fyrir Svínshöfuð (Benedikt bókaútgáfa).

Sigríður Kristín Þorgrímsdóttir vann verðlaunin í flokki fræðirita og rita almenns efnis fyrir Jakobína: Saga skálds og konu (Mál og menning).

Afhending Fjöruverðlaunanna fór fram í Höfða.

Umsagnir dómnefnda um verðlaunabækurnar

Kennarinn sem hvarf

Kennarinn sem hvarf: Í umsögn dómnefndar, sem Guðrún Jóhannsdóttir, Hildur Ýr Ísberg og Sigrún Birna Björnsdóttir skipuðu, segir:

- Auglýsing -

Bergrún Íris Sævarsdóttir er fjölkunnug mjög enda bæði afbragðs listakona og rithöfundur. Bók hennar, Kennarinn sem hvarf er fimlega byggð spennusaga sem heldur lesendum á aldrinum 9-12 ára föngnum til enda. Spennusagnaformið keyrir söguna áfram en sagan er allt í senn, hröð og skemmtileg og byggð samkvæmt lögmálum hefðbundinnar frásagnar. Söguna segir 12 ára gömul stúlka sem ásamt bekkjarfélögum sínum leita horfins kennara og leysa um leið flóknar þrautir. Persónurnar virðast við fyrstu sýn fremur einfaldar og staðlaðar en þegar á reynir eru þær ekki byggðar upp af staðalímyndum heldur verða þær lifandi og margræðar þegar á frásögnina líður rétt eins og frásögnin sjálf. Bygging bókarinnar ásamt persónusköpun fleytir þessari heildstæðu sögu hátt og færir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur tilnefningu til Fjöruverðlaunanna 2020.

Svínshöfuð

Svínshöfuð: Í umsögn dómnefndar, sem Elín Björk Jóhannsdóttir, Jóna Guðbjörg Torfadóttir og Kristín Ástgeirsdóttir skipuðu segir:

Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur er ljómandi vel skrifuð og margþætt skáldsaga. Þar fléttast saman sögur ólíkra persóna; eldri manns sem elst upp við Breiðafjörð, húsmóður í Kópavogi og ungs innflytjanda frá Kína. Öll eiga þau það sameiginlegt að vera jaðarsett og einangruð, hvert á sinn hátt. Heimurinn sem Bergþóra dregur upp er grimmur en persónur hennar eru heilsteyptar og þótt lýsingar séu oft gróteskar eru þær skapaðar af stakri næmni fyrir breyskleika mannfólksins. Bergþóra dregur fram áhrifaríkar myndir sem sitja lengi í lesandanum og vald hennar á tungumálinu er slíkt að unun er að lesa Svínshöfuð.

- Auglýsing -
Jakobína: Saga skálds og konu

Jakobína: Saga skálds og konu: Í umsögn dómnefndar, sem Dalrún J. Eygerðardóttir, Sóley Björk Guðmundsdóttir og Þórunn Blöndal, skipuðu segir:

Jakobína, saga skálds og konu, segir frá lífi og starfi Jakobínu Sigurðardóttur rithöfundar. Jakobína er án efa með merkilegri skáldum síns tíma á Íslandi, en ferlið var oft flókið. Bókin segir frá löngun í menntun, togstreitu gagnvart hjónabandi og síðar húsmóðurhlutverkinu, og skáldastarfinu sem hún brann fyrir alla ævi.  Bókin er skrifuð af dóttur Jakobínu, Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur, sem tvinnar einstaklega vel saman sögu þessarar áhugaverðu konu, bréfaskrif milli Jakobínu og hennar nánustu, og ljóð eftir hana og aðra. Útkoman er forvitnileg saga sem gefur ómetanlega innsýn inn í líf og hugarheim þessa áhrifamikla skálds.

Níu höfundar og bækur voru tilnefndar:

Fagurbókmenntir
Svanafólkið eftir Kristínu Ómarsdóttur
Okfruman eftir Brynju Hjálmsdóttur
Svínshöfuð eftir Bergþóru Snæbjörnsdóttur

Fræðibækur og rit almenns eðlis
Öræfahjörðin: Saga hreindýra á Íslandi eftir Unni Birnu Karlsdóttur
Jakobína: Saga skálds og konu eftir Sigríði Kristínu Þorgrímsdóttur
Listin að vefa eftir Ragnheiði Björk Þórsdóttur

Barna- og unglingabókmenntir
Kjarval: Málarinn sem fór sínar eigin leiðir eftir Margréti Tryggvadóttur
Kennarinn sem hvarf eftir Bergrúnu Írisi Sævarsdóttur
Villueyjar eftir Ragnhildi Hólmgeirsdóttur

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -