Þriðjudagur 19. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Venjulegt fólk slær met

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Önnur sería af gamanþáttaröðinni Venjulegt fólk kom í heild sinni í Sjónvarp Símans Premium á miðvikudaginn í síðustu viku.

Þáttaröðin hefur fengið frábærar viðtökur og var spiluð yfir 100 þúsund sinnum á fyrstu dögunum. Þáttaröðin vermir nú efstu sex sætin á topp 10 listanum yfir mest spiluðu þætti vikunnar.

Arnmundur, Júlíana Sara, Vala Kristín og Hilmar í hlutverkum sínum.

Í vikunni sem er að líða var á sama tíma slegið nýtt met og náðust yfir 870 þúsund pantanir hjá þeim 42 þúsund heimilum sem eru með áskrift að efnisveitunni.

Það er því ljóst að stór hluti þjóðarinnar hefur verið að hámhorfa á nýjustu þáttaröðina af Venjulegu fólki síðustu daga.

Með aðalhlutverk fara þær Vala Kristín Eiríksdóttir, Júlíana Sara Gunnarsdóttir, Hilmar Guðjónsson og Arnmundur Ernst Backman. Vala og Júlíana skrifa þættina ásamt Dóra DNA og Fannari Sveinssyni sem jafnframt leikstýrir þáttunum.

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -