Föstudagur 19. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Falsfrétt Vigdísar Hauksdóttur

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Vigdís Hauksdóttir, borgarfulltrúi Miðflokksins, hefur undanfarin misseri haldið uppi látlausum áróðri gegn Degi B. Eggertssyni borgarstjóra. Þannig hefur hún haldið því fram að Dagur hafi fengið  þrjú bílastæði á kostakjörum frá Reykjavíkurborg sem hefur verið rekið ofan í hana sem falsfrétt. Þá fullyrðir Vigdís að framkvæmdir við Óðinstorg hafi kostað margfalt meira en áætlað hefur verið. Segja má að Vigdís hafi verið með  borgarstjórann á heilanum undanfarið og notað flest tækifæri til að hnjóða í hann. Eftir að fjölskyldubifreið borgarstjórans varð fyrir riffilskoti virðist Vigdís vera brugðið. „Snúum bökum saman hvar í flokki sem við stöndum og komum í veg fyrir ofbeldi,“ skrifar hún á Facebook. Líklega hefur skotmanninum mistekist aðförin að Degi og tryggt honum þess í stað samúð og góða endurkosningu eftir rúmt ár. Viðbúið er að Vigdís sé á útleið úr borgarstjórn …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -