Fimmtudagur 25. apríl, 2024
5.1 C
Reykjavik

Jón Ásgeir í banastuði

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Jón Ásgeir Jóhannesson athafnamaður hefur rifið olíufélagið Skeljung upp og komið því í góðan hagnað eftir nokkra lognmollu. Þetta er sigur fyrir Jón Ásgeir sem lýsti því að eftir hrun hefði hann verið orðinn nær gjaldþrota. Nú er hann upprisinn og í banastuði.

Móðurfélag Skeljungs, Skel, lætur ekki eldsneytismarkaðinn einan nægja því það teygir anga sína víðar um markaðinn. Nú stefna Jón Ásgeir og viðskiptafélagar hans á stórsókn á dagvörumarkaði með netverslun Heimkaupa. Skeljungur á orðið stóran hlut í Wedo ehf., móðurfélagi Heimkaupa, Hópkaupa og Bland.is. Þarna er Jón Ásgeir á heimavelli en eins og kunnugt er á hann hvað stærstan hlut að baki velgengni  Bónuss sem varð á sínum tíma risi á matvörumarkaði undir hans stjórn.

Nýjasta útspil Jóns Ásgeirs er að ráða Grétu Maríu Grétarsdóttur sem framkvæmdastjóra. Gréta María reif gengi Krónunnar upp og kom henni upp að hliðinni á Bónusi. Þá var hún um tíma í stjórnendastöðu hjá Brimi en eftir snertilendingu í ferðaþjónustunni er hún mætt til að gera Heimkaup að stórveldi og það er hrollur í samkeppnisaðilunum …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -