Miðvikudagur 27. mars, 2024
-1.2 C
Reykjavik

Smekklaus Björg iðraðist

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Sjónvarpskonan vinsæla, Björg Magnúsdóttir, vakti undrun og hneykslan í Söngvakeppni sjónvarpsins þegar hún var með söngkonuna Kötlu í beinni útsendingu. Katla sagði frá því að hún væri ekki síst að syngja í minningu föður síns sem lést árið 2018. Katla hafði búið til hálsmen úr giftingarhring föðurins, sem hún bar í gærkvöld: „Þetta er giftingarhringurinn hans þannig hann er alltaf með,“ sagði hún. Björg var snögg til svars: „Hún er að reyna að fá atkvæði út á þetta, nei ég segi svona.“ Þessi ummæli fóru illa í áhorfendur og netverja sem fóru sumir hverjir hamförum yfir smekkleysunni.  Björg iðraðist sárlega ummæla sinna og skömmu síðar bað hún Kötlu innilega afsökunar í beinni útsendingu með þeim orðum að brandarinn hefði verið óviðeigandi og allt gæti gerst í beinni útsendingu …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -