Miðvikudagur 24. apríl, 2024
7.1 C
Reykjavik

Vigdís Hauks er fundin

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Borgarfulltrúinn orðhvati, Vigdís Hauksdóttir, hvarf á einni svipstundu af yfirborði jarðar þegar Helga Björg Ragnarsdóttir, skrifstofustjóri Reykjavíkurborgar, flúði starf sitt og lýsti „stöðugu á­reiti og of­sóknum“ af hálfu borgar­full­trúans. Málið virðist allt vera hið alvarlegasta og lýsir dólgshætti og jafnvel fantaskap í garð embættismannsins. Fjölmiðlar höfðu hug á því að fá viðbrögð Vigdísar en aldrei slíku vant lét hún ekki ná í sig. Í herbúðum hennar var lengi grafarþögn.

En þögn hinnar málglöðu var loksins rofin þegar málið um kaup meirihluta Dags B. Eggertssonar á kynlífstækjabúðinni komst í hámæli. Þá tjáði hún sig um meint bruðl. En hin gullna spurning til borgarfulltrúans er sú hvers vegna hún hafi ofsótt embættismanninn með þeim afleiðingum sem blasa við. Ætlar hún að axla ábyrgð eða telur hún að þögnin muni svæfa málið? …

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -