Fimmtudagur 28. mars, 2024
1.8 C
Reykjavik

10 ár sem bæjarstjóri og 24 ár í bæjarstjórn

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Ármann Kr. Ólafsson hélt sína síðustu ræðu í bæjarstjórn Kópavogs á 1258.fundi bæjarstjórnar, sem haldinn var þriðjudaginn 24. maí og var síðasti fundur kjörtímabilsins.  Hann á að baki 24 ár í bæjarstjórn Kópavogs og 10 ár sem bæjarstjóri.

Ármann, sem varð oddviti Sjálfstæðisflokksins árið 2010, var kjörinn bæjarstjóri Kópavogs 14. febrúar 2012 af meirihluta Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Lista Kópavogsbúa.

Hann var svo bæjarstjóri í meirihluta Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar 2014 til 2018 og meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks 2018 til 2022.

Ármann var kjörinn í bæjarstjórn Kópavogs árið 1998 og á því um 480 fundi í bæjarstjórn að baki. Á ferlinum hefur hann setið í bæjarráði, atvinnumálanefnd, menntaráði og framkvæmdaráði. Þá hefur hann verið formaður skipulagsnefndar, félagsmálaráðs og skólanefndar Kópavogs, og verið forseti bæjarstjórnar. Hann hefur setið í hafnarstjórn og verið hafnarstjóri frá 2018.

Fleiri nýttu fundinn til að kveðja

Í sinni síðustu ræðu nýtti Ármann tækifærið og rifjaði upp ýmsar breytingar á bænum og starfsemi hans en íbúar voru tæp 20.000 þegar hann náði kjöri og hefur bærinn því tvöfaldast að stærð og umfang stjórnsýslu vaxið sem því nemur auk þess að fleiri verkefni hafa færst til sveitarfélaganna en áður var.

Ármann þakkaði samstarfsfólki í gegnum tíðina fyrir samstarfið og minntist með hlýju þeirra bæjarstjóra sem hann starfaði með sem bæjarfulltrúi, en það eru þau Sigurður Geirdal, Hansína Á Björgvinsdóttir, Gunnar Birgisson, Gunnsteinn Sigurðsson og Guðrún Pálsdóttir.

- Auglýsing -

Fleiri bæjarfulltrúar nýttu fundinn til að kveðja en þetta var einnig síðasti fundur Birkis Jóns Jónssonar, Jóns Finnbogasonar, Margrét Friðriksdóttir, Pétur Hrafn Sigurðarsonar og Einars Þorvarðarsonar sem reyndar er varabæjarfulltrúi í þeirri bæjarstjórn sem nú tekur við.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Endilega láttu heyra frá þér!
Frjálst er að senda nafnlausa ábendingu en netfang þarf að vera útfyllt.

Fullum trúnaði er heitið.

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -