Föstudagur 19. apríl, 2024
1.1 C
Reykjavik

Góð ráð að grípa til á erfiðum degi

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Eftir / Kristínu Snorradóttur

Suma daga vaknar maður bara illa upplagður og jafnvel með höfuðverk eða dagurinn byrjar á neikvæðri athugasemd frá yfirmanni eða einhverjum öðrum. Með öðrum orðum: dagurinn byrjar þannig að það virðist sem allt sé á móti þér en ekki með þér í dag.

Allir upplifa svona leiðindadaga en til eru ýmis ráð til þess að snúa deginum og flestallir eiga í fórum sínum verkfæri sem nýtast til þess. Kíkjum aðeins í verkfæraboxið og sjáum hvað við getum gert til þess að eignast innistæðu í andlega bankanum svo við eigum auðveldara með að takast á við erfiðu dagana.

Hér koma nokkur einföld ráð sem flest allir geta styrkt hjá sér og nýtt sér:

Skelltu þér í sturtu
Á slæmum degi er ótrúlega freistandi að liggja í rúminu með sængina yfir haus og velja að vera í eymdinni, en með því að fara í sturtu og hefja daginn þvoum við af okkur leiðindin. Þarna þarf svolítinn sjálfsaga en þetta er jú einföld athöfn.

Talaðu við einhvern um líðan þína
Ekki sitja ein/n með tilfinningar og hugsanir. Orðaðu þær og fáðu speglun og hvatningu frá öðrum. Þannig situr þú ekki ein/n uppi með hugarangur og jafnvel sekkur dýpra í erfiðar tilfinningar. Einfalt en mikilvægt að velja sér uppbyggilegan aðila til að tala við.

- Auglýsing -

Lokaðu á samskiptamiðla
Ekki hanga á fréttamiðlum eða samfélagsmiðlum því þar er hætta á neikvæðu áreiti sem þú getur ekki stýrt, en utan vefmiðla getur þú stýrt betur hverju þú hleypir að þér. Snilld er að grípa í góða bók eða skapa eitthvað.

Stundaðu sjálfsrækt
Sinntu þér vel, mættu þér í mildi. Leyfðu þér að taka tíma fyrir þig án samviskubits. Farðu í bíó, horfðu á mynd, farðu í göngu, bara eitthvað sem nærir þig. Kannski nærir þig að gera alls ekkert. Nauðsyn þess að hlaða sig er óumdeilanleg. Það má kveikja á sjónvarpi um miðjan dag eða hanga í baði ef það er gott fyrir þig. Þú átt eitt eintak af þér og þín ábyrgð að sinna því vel.

Farðu út í náttúruna
Náttúran er heilandi og að draga inn ferskt loft er gott fyrir líkama og sál. Sjáðu fegurðina í náttúrunni það gerir gott að njóta fegurðar. Fátt er betra en að ganga úti í náttúrunni og finna fyrir vindinum eða rigningunni og ilminum sem fylgir. Ef þú átt hund er snilld að kippa honum með.

- Auglýsing -

Stýrðu huganum
Ekki festast í neikvæðum hugsunum yfir því sem hefur gerst. Taktu ákvörðun um að hefja daginn að nýju. Skrifaðu niður allt sem þú hefur gert vel, skrifaðu niður allt sem þú ert þakklát/ur fyrir. Það kemur í veg fyrir neikvæðan huga. Tær snilld er að skella einhverri ofurhressandi tónlist á og trufla hugann eða horfa á eitthvað hrikalega fyndið. Hugurinn er nefnilega þannig að hann truflast auðveldlega.

Rifjaðu upp góðar minningar
Skoðaðu myndaalbúm, hringdu í vin og ræddu skemmtilega minningu eða enn betra: endurtaktu leikinn. Flest okkar gerðu einhver kjánastrik í æsku eða á unglingsárum, sum okkar eru enn kjánaprik sem fá okkur til að brosa.

Hugleiddu
Hugleiðsla er eitt öflugasta verkfæri í því að styrkja sjálfan sig. Hugleiðsla dregur úr streitu og kvíða og styrkir þig innan frá. Ótal margar ritrýndar rannsóknir sýna fram á breytta og betri heilastarfsemi hjá þeim sem hugleiða reglulega. Það er ekkert mál að hugleiða, það eru til fullt af öppum til þess.

Þetta eru aðeins nokkur atriði en þau kveikja klárlega í fleiri atriðum. Njóttu lífsins, það er þitt.

Höfundur er markþjálfi og aðili í FKA.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -