Föstudagur 19. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Lífið er alltaf tilbúið í næsta skref

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Höfundur: Guðrún Arnalds, jógakennari, hómópati og leiðbeinandi í Fókusing, aðferð til að hlusta á visku líkamans.

Breytingar eru óhjákvæmilegur hluti af lífinu. Við erum alltaf að takast á við breytingar. Stórar og smáar. Veðrið sem er sífellt að skipta um ham. Nýtt líf sem fæðist. Börnin okkar þroskast og stækka og verða að tilfinningaríkum unglingum. Við horfum á þau flytja að heiman og tökumst á við tómarúmið sem fylgir áður en við stígum inn í næsta kafla. Við horfum á okkar nánustu veikjast og deyja. Lífið heldur alltaf áfram og stöðvast ekki þó að við myndum stundum vilja að það stæði í stað. Lífið er alltaf tilbúið í næsta skref. Á eftir innöndun fylgir útöndun.

Sumar breytingar eru erfiðari en aðrar. Við erum ekki alltaf tilbúin horfast í augu við það sem kemur næst. Streita hefur verið skilgreind sem tilraun líkamans til þess að höndla breytingar.

Líkaminn er svo vitur. Hann veit hvað hann þarf. Við hlustum bara ekki alltaf á hann. Ég á það til að fara fram úr sjálfri mér og ætla mér allt of mikið. Þá verður erfiðara að vera sveigjanleg í öllu öldurótinu sem lífinu fylgir. Ég þarf að minna mig á það daglega að halda í einfaldleikann. Að velja það sem færir mér aukið jafnvægi. Að henda því sem ég þarf ekki. Og að fylla ekki hugann af óþarfa upplýsingum. Þetta er síður en svo auðvelt á nútímahraða.

Þegar ég er búin að færast of mikið í fang þá finnst mér stundum heimurinn verða svo lítill og þröngur. Eins og að búa í gluggalausu húsi og enginn himinn í augsýn sem minnir mig á að anda og hlæja. Ég tek jafnvel ekki eftir þessu fyrr en ég fer út að ganga eða sest niður og hugleiði. Þá finn ég aftur jörðina undir fótunum og himininn sem hvelfist yfir og ég veit að ég er ekki ein.

Sveigjanleiki gagnvart breytingum er í raun eins konar viðhorf. Seigla. Að taka lífinu eins og það kemur fyrir. Að kunna að biðja um hjálp þegar það á við. Að taka hlutunum ekki of persónulega. Kolbeinn, dóttursonur minn, kvartar ekki þegar hann dettur á rassinn. Hann bara stendur upp aftur. Möglunarlaust. Náttúran er oft svo miklu hugrakkari en ég. Fræið veit hvað það vill verða. Trén sleppa laufinu á haustin án þess að reyna að halda í sumarið. Fossinn fellur fram af brúninni án þess að hika og sleppir sér út í óvissuna. Ef ég gef mér rými til að hlusta á líkamann þá finn ég að hann veit. Hann veit hvernig hann á að stíga næsta skref. Hann man enn þá hvernig það er að taka lífinu fagnandi eins og barnið gerir. Eins og náttúran. Hann er náttúran.

- Auglýsing -

Lífið sem við lifum hefur fært okkur fjær náttúrunni. Og þar af leiðandi fjær líkamanum og viskunni sem hann býr yfir. Það hefur aldrei verið meiri þörf en nú, fyrir leiðir sem minna okkur á að staldra við og hlusta. Jóga hefur verið mér mjög dýrmætt einmitt fyrir þessar sakir. Það kennir mér að leyfa lífinu að flæða. Það færir mér lífsorkufulla gleði, hugarró og sjálfsmildi. Það hefur kennt mér að tengja við djúpan kjarna í sjálfri mér, sem man hvernig ég á að vera ég. Það að læra að iðka jóga og kenna jóga hefur verið mín stærsta blessun í lífinu.

Andartak jóga- og heilsustöð – www.andartak.is / [email protected]

 

- Auglýsing -

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -