Föstudagur 19. apríl, 2024
6.1 C
Reykjavik

Pútín er sannkallað illmenni

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Stríðsrekstur Rússa og innrás í Úkraínu er glæpur gegn mannkyni. Heimsbyggðin stendur frammi fyrir því að æðsti maður Rússlands er kominn út yfir öll mörk og hótar kjarnorkustríði ef hann fái ekki að fara sínu fram gegn nágrannaþjóð sinni sem nú mætir her Rússlands. Hann ber þau einkenni að vera viti sínu fjær.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins, á heiður skilinn fyrir að hafa skilgreint Vladimir Putin, forseta Rússlands, sem illmenni á flokksþingi Framsóknarflokksins um síðustu helgi. „Von­andi næst að stöðva þessi ill­virki. Von­andi ber rúss­nesku þjóðinni gæfa til að losa sig við ill­menni úr Kreml sem eru yfir stjórn þessa merki­lega lands sem Rúss­land er,“ sagði Sig­urður Ingi í ræðu sinni.

Ólafur Ragnar má skammast sín

Fleiri hafa tekið undir fordæmingu á Pútín. Þar má nefna Guðna Th. Jóhannesson, forseta Íslands, sem er ómyrkur í máli hvað varðar níðingsverk Rússa í Úkraínu. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur talað á svipuðum nótum. Afstaða Ólafs Ragnars Grímssonar, fyrrverandi forseta Íslands, vekur aftur á móti óhug og athygli. Hann lét liggja að því í viðtali í Ríkisútvarpinu að skrifa megi stríðið í Úkraínu á útþenslu Atlantshafsbandalagsins sem stöðugt sé að færast nær Rússlandi. Ólafur Ragnar er með þá ímynd að vera að nokkru marki samnefnari þjóðar sinnar og á hann hefur verið hlustað. Þessi afstaða hans er á skjön við skoðanir almennings sem fordæmir stríðsrekstur Rússa og það morðæði sem birtist fólki frá Úkraínu. Ólafur Ragnar má skammast sín fyrir meðvirkni með illvirkjunum.

Það er ekkert sem réttlætir það sem er að gerast í Úkraínu. Almennikr borgarar eru drepnir og heimili fólks eru eyðilagðar. Stór hluti úkraínsku þjóðarinnar er kominn á vergang. Heilu borgirnar eru rústir einar fyrir tilstilli eins valdasjúks manns. Stríð Pítins snertir alla heimsbyggðina. Sem betur fer er nokkuð almenn samstaða um að stöðva helför Rússa í Úkarínu. Lýðræðisþjóðir hafa snúið bökum saman um að refsa Rússum og stöðva stríðið. Við Íslendingar eigum að vísa rússneska sendiherranum úr landi og leggja okkar lóð á vogaskálarnar til að refsa illmennunum.

Rússneska sendiráðið hefur krafið formann Framsóknarflokksins um afsökunarbeiðni vegna ummælanna um valdamenn í Kreml. Það er engin ástæða til að hlusta á það urr í rússneska birninum. Sigurður Ingi má vera stoltur af orðum sínum um illmennin í Kreml. Pútín og félagar eru óvinir almennings í heiminum. Það er Pútín sem skuldar allri heimsbygginni afsökunarbeiðni.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -