Gunnleifur Gunnleifsson markvörður Breiðabliks hefur nú ákveðið að selja treyjur úr einkasafni sínu á uppboði. Allur ágóði mun renna til Píeta samtakana á Íslandi.
Treyjurnar koma víðsvegar að. Skiptitreyjur eftir leiki og gjafatreyjur frá vinum og félögum. Landslið og félagslið, þekkt og óþekkt nöfn, frá Íran til Frakklands, Waregem til Man City, og margar fleiri.
Fótbolti.net mun í þessari og næstu viku bjóða upp þrjár treyjur en þær seljast allar í sitthvoru lagi. Fleiri treyjur verða á uppboði á næstunni. Einnig verða treyjur sem ekki fara á uppboð á Fótbolti.net, til sölu á slá í Jóa Útherja.
Treyjurnar á uppboðinu verða til sýnis á SportogGrill í Smáralind.
Treyjurnar sem Fótbolti.net býður upp eru
Treyja Gylfa Þórs Sigurðssonar úr leik á EM – Hæsta boð 50 þúsund krónur
Treyja Raul Meireles úr Portúgals og Íslands
Treyja Joe Hart úr leik Cardiff og Manchester City
Þú getur boðið í treyju með því að senda á [email protected]
Lágmarksboð er 15 þúsund krónur.
Uppboðið stendur yfir til kl. 12.00 föstudaginn 29. nóvember.
Píeta samtökin bjóða einnig upp á þjónustu í síma 552-2218 fyrir fólk í sjálfsvígshættu og með sjálfsskaðahegðun.