Alþingiskonan Helga Vala Helgadóttir er fjölhæf kona sem finnst fátt skemmtilegra en að takast á við nýjar áskoranir.
Hún hefur setið á Alþingi frá árinu 2017 en einnig verið umboðsmaður hljómsveitarinnar Mammút og leikið í farandleiksýningum á Bretlandseyjum. Einnig er Helga Vala sprenglærð
þótt hún sé ekki með stúdentspróf; hefur náð sér í þrjár háskólagráður – einni í leiklist og tveimur í lögfræði.
Hún ræddi lífið og tilveruna í hlaðvarpsþættinum Snæbjörn talar við fólk.
Ein gráðan gæti bæst við í framtíðinni, en Helga Vala hefur áhuga á að leggja fyrir sig smíðar og hyggur á nám, allavega námskeið til að byrja með. Helgu Völu finnst mjög gaman að smíða; hefur til að mynda smíðað fataskápa og bókahillur fyrir heimilið og langar að fara á námskeið í húsamíði.