Miðvikudaginn 16. desember 2020 klukkan 20 verða tónleikar í Hofi á Akureyri til heiðurs byltingartónskáldinu Ludwig van Beethoven, en hann fæddist á þessum degi fyrir 250 árum. Tónleikunum verður einnig streymt á mak.is.
Tónleikarnir sem bera yfirskriftina Hinn bjarti Beethoven eru haldnir af Tónlistarfélagi Akureyrar í samvinnu við Menningarfélag Akureyrar. Verkin á efnisskránni einkennast af birtu, gleði og krafti og tilheyra þeim tíma í lífi Beethovens áður en hann fór að missa heyrn að ráði. Þetta eru Sónata í A-dúr opus 68 fyrir píanó og selló, Sjö tilbrigði um stef úr Töfraflautunni Wo O 46 fyrir píanó og selló og Tríó í B dúr opus 11 fyrir klarinett, selló og píanó. Einnig verður flutt Aría úr Töfraflautunni eftir Mozart.
Í upphafi tónleikanna leikur hópur sellónemenda Óðinn til gleðinnar úr 9. Sinfóníunni. Fyrir tónleikana mun strengjakvartett nemenda leika verk eftir Beethoven í Naustinu.
Nemendurnir stunda hljóðfæranám við Tónlistarskólann á Akureyri og í Tónlistarskóla Eyjafjarðar.
Flytjendur eru Ásdís Arnardóttir selló, Helena Guðlaug Bjarnadóttir sópran, Jón Sigurðsson píanó, Michael Jón Clarke baritón, Michael Weaver klarinett og Þórarinn Stefánsson píanó.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis en frjáls framlög eru vel þegin. Panta þarf miða á tónleikana vegna gildandi fjöldatakmarkana.
Menningarsjóður Akureyrar, Akureyrarbær og Tónlistarsjóður styrkja þennan viðburð.