Fimmtudagur 18. apríl, 2024
3.1 C
Reykjavik

Ný íslensk gamanmynd um uppistand

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Mentor, ný kvikmynd leikstjórans Sigurðar Antons Friðþjófssonar, verður frumsýnd í Senubíóunum þann 24. júní. Myndin er gamanmynd og fjallar um unga stúlku sem skráir sig í uppistandskeppni þótt hún hafi aldrei stigið á svið og leitar til uppistandarans sem vann keppnina tíu árum fyrr um aðstoð.

 

Sigurður Anton, sem þekktur er fyrir myndirnar Webcam, Snjór og Salóme, skrifar handrit og leikstýrir, en með helstu hlutverk fara Sonja Valdín, Þórhallur Þórhallsson, Anna Hafþórsdóttir, Jónína Þórdís Karlsdóttir, Júlí Heiðar Halldórsson, Gunnar Helgason, Ísgerður Elfa Gunnarsdóttir og Álfrún Helga Örnólfsdóttir.

Á vefsíðunni Klapptré hefur Sigurður Anton þetta að segja um tilurð myndarinnar: „Mig hefur langað að gera kvikmynd um uppistand í mörg ár en aldrei fundið nógu áhugaverðan vinkil. Síðan kynntist ég bæði Þórhalli og Sonju og þá datt mér í hug þessi saga um tvær kynslóðir sem mætast. Eftir að hafa gert tvær gamandrama myndir langaði mig líka að gera mynd sem væri algjör grínmynd. Smám saman varð hún dýpri, en kjarninn um að hafa hana létta og brandaramikla hélst.“

 

 

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -