Þriðjudagur 23. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Sunneva Ása kærasta Baltasars Kormáks seldi Dorrit tíu listaverk: „Ég er bara rétt að byrja“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Listakonan Sunneva Ása Weisshappel er að gera góða hluti og segir á Facebook síðu sinni að

„þeir sem misstu af tækifærinu þurfa bara að bíða, því ég er bara rétt að byrja.“

Öll 36 verk Sunnevu seldust upp á listasýningu hennar, en fyrrum forsetafrúin Dorrit  Moussaieff keypti hvorki fleiri né færri en tíu af þessum 36 verkum:

„Ég þakka innilega góðan stuðning og frábærar viðtökur við listaverkarýmingunni hjá mér, en öll þau málverk, myndir og teikningar sem ég átti til (36 verk) eru komin með nýja eigendur, sýningarými og heimili,“ segir Sunneva og bætir við:

„Sérstaklega við ég þakka Dorrit Moussaieff sem keypti af mér 10 málverk á einu bretti!!! Nánast alla einkasýninguna mína, Undirlög, sem sýnd var í Gallarí Þulu fyrr á þessu ári.

Það er mjög hvetjandi að hefja nýjan kafla í lífinu, eftir að hafa hreinsað til, en ég var að byrja í mastersnámi í myndlist í Goldsmith. Núna er ég að finna hvað ég vil einblína á og flytja til London með brennandi trú á listina og mikilvægi hennar. Þeir sem misstu af tækifærinu þurfa bara að bíða, því ég er bara rétt að byrja.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -