Laugardagur 20. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Tanja ferðast ein um Tyrkland og dvelur á glæsihótelum

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Áhrifavaldurinn Tanja Ýr er stödd í Tyrklandi þessa dagana og hefur hún sýnt frá ferðalaginu á Instagram síðu sinni. Tanja er eigandi Tanja Yr cosmetics og Glamista hair, en sigraði hún einnig Ungfrú Ísland árið 2014.

Tanja Ýr
Tanja ferðast nú ein um heiminn og segist hún aldeilis ekki vera hrædd við það að ferðast ein. Hún sé vön því og njóti vel.
Tanja er nú stödd í Kas í Tyrklandi, sem hún segir vera einn af hennar uppáhalds stöðum en þangað hefur hún komið áður.
Þá hefur hún gaman að því að sjá sömu villihunda og ketti sem hún hitti fyrr á árinu, en Tanja er mikill dýravinur.


Á ferðalagi sínu hefur Tanja dvalið á hinum ýmsu hótelum og eru þau öll hin glæsilegustu af myndum að dæma. Tanja hefur þá sagt fylgjendum sínum að hún muni taka hótelin saman í lok ferðar og segja sína reynslu af hverju og einu.
Fyrir áhugasama er hægt að fylgjast með Tönju í Tyrklandi á Instagram síðu hennar tanjayra.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -