Þriðjudagur 23. apríl, 2024
4.1 C
Reykjavik

Vinir eignast barn saman: „Takk fyrir að velja okkur sem foreldra elsku sonur okkar“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -
Þórdís Imsland skrifar fallega færslu á Facebook-síðu sinni sem ber yfirskriftina: Þegar draumar manns rætast.
Hún og Sigurjón Örn Böðvarsson eignuðust nýverið saman barn þrátt fyrir að vera „bara“ vinir – þau eru ekki par eða hjón – þau eru vinir og voru með sameiginlegan draum, að eignast barn. Og það gerðu þessir fallegu vinir saman.
„Þvílík forréttindi, orðlaus, yfirþyrmandi ást, þakklæti, hamingja og lífið breyttist á einum degi.
Draumaprinsinn fæddist 23. okt kl. 15:59, 16 merkur og 53 cm, heilbrigður, með dökkblá augu, gyllt hár, englarödd og fullkominn í alla staði,“ skrifar hún og bætir við:
„Takk fyrir allan stuðninginn og hamingjuóskirnar. Við svífum um á bleiku skýi og tímum varla að blikka augunum og dáumst að hverju hljóði, svipbrigðum, búkhljóðum, lyktinni, gullhárinu og litlu fingrunum sem grípa í mann.

Vinirnir með barnið sitt
Mynd: Facebook
Takk fyrir að velja okkur sem foreldra elsku sonur okkar. Nú byrjar ballið og við getum ekki beðið eftir því að fá að dansa með þér í gegnum lífið.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -