Föstudagur 2. júní, 2023
9.8 C
Reykjavik

Bæjarstjórnin hafnaði öllum tilboðum í nýja Hamarshöll

Helgarviðtalið

- Auglýsing -

Orðrómur

- Auglýsing -

Síðastliðinn mánudag ákvað bæjarstjórn Hveragerðisbæjar á fundi sínum, að hanfna öllum tilboðum er bárust í hönnun og byggingu nýrrar Hamarshallar.

Í frétt Sunnlenska.is kemur fram að fjögur verktakafyrirtæki hafi sent inn tilboð en að þau hafi öll verið yfir kostnaðaráætlun sveitarfélagsins sem er tæpur 1,1 milljarður króna. Stálgrindarhús ehf. átti lægsta tilboðið, 1.229 milljónir króna.

Ástæða höfnunarinnar er sögð í samþykkt bæjarstjórnar, vera sú að tilboðin séu of há miðað við fjárhagsáætlun bæjarins og teljist þau því óaðgengileg í lagalegum skilningi um opinber innkaup.

Heimild er í þeim lögum að efna til samkeppnisviðræðna við þá bjóðendur sem uppfylltu hæfniskröfur útboðsins. Samþykkti bæjarstjórn að fela bæjarstjóra að hefja þær viðræður.

Fulltrúar D-listans sátu hjá í atkvæðagreiðslunni en tilllagan var samþykkt með fimm atkvæðum meirihlutans. D-listinn létu færa til bókar að heildarkostnaðurinn sem og framkvæmdartíminn sé áhyggjuefni.

„Þannig er lægsta tilboðið sem kom fram í útboðinu um 64% yfir upphaflegri fjárhagsáætlun. Tilboðin eru það langt umfram getu bæjarfélagsins að lítil sem engin von er til að viðræður við tilboðsgjafana leiði til farsællrar lausnar og muni tefja málið til skaða fyrir bæjarbúa,“ segir í bókun fulltrúa D-listans en þeir benda á að aðrar leiðir séu fjárhagslega raunhæfari og fljótlegri, til dæmis gervigrasvöllur í fullri stærð, viðbygging við núverandi íþróttahús eða loftborið hús.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -