- Auglýsing -
Upp kom eldur í Gullhólma SH snemma í morgun en skipið var á Breiðafirði. Engan sakaði.
Samkvæmt mbl.is er haft eftir Svani Tómassyni slökkviliðsstjóra, að skipverjar Gullhólma SH hafi brugðist hárrétt við en þeir ræstu slökkvikerfi skipsins, lokuðu rýmum og kallaði eftir aðstoð. Engan sakaði í brunanum.
Var nærliggjandi bátum gert viðvart en björgunarskip Lífsbjargar, Björgin, dróg skipið til hafnar á Rifi. Ekki er enn vitað um eldsupptök en unnið er að reykræstingu.