Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Glúmur segir Ólaf Ragnar „mesta vind­hana sem Ísland hefir fætt og klætt“

Heimamenn ræða aðgerðir vegna Vatnsnesvegar: „Sagði Innviðaráðherra ekki örugglega àfram veginn?“

Heimamenn ræða aðgerðir vegna Vatnsnesvegar: „Sagði Innviðaráðherra ekki örugglega àfram veginn?“
Versti vegur lands­ins? Mynd: hunathing.is

Guðrún Ósk Stein­björns­dóttir, aðstoð­ar­skóla­stjóri og bóndi,  skrif­aði færslu á Facebook sem vakið hefur athygli. Snýr færslan að hrikla­legum vega­kafla í Húna­þingi vestra.

Guðrún Ósk hefur um ára­bil verið í hópi þeirra sem kvarað hafa undan Vatns­nes­vegi en um hann þurfa börn á svæð­inu að keyra á leið í skól­ann á vet­urnar. Vegurinn er einn sá allra versti á land­inu öllu en lengi hefur verið talað um úrbætur en enn bólar ekki á þeim. Færsla Guðrúnar Óskar er hér að neðan:

„Það verður gaman fyrir skóla­börnin að ferð­ast um Vatns­nes­veg­inn í haust. Sagði Inn­við­a­ráð­herra ekki örugg­lega àfram veg­inn? Honum er boðið hér með að keyra þennan veg bæði áfram og aftur á bak ef hann vill.

Ég vil árétta enn á ný að sam­kvæmt nýrri sam­göngu­á­ætlun eiga börn eftir að keyra þennan veg alla sína skóla­göngu áður en til gagn­gerra end­ur­bóta kemur.“

Eins og sjá má er smá veg að sjá þarna en aðal­lega holur.

Í sam­tali við Mannlíf sagði Guðrún Ósk að hún eigi sjálf börn sem þurfa að ferð­ast þennan veg en þó séu þau heppn­ari en mörg önnur því þau búi nær skól­anum.

„Frá mínu heim­ili ferð­ast börn bæði í leik- og grunn­skóla. Ég bý svo vel að það er ekki nema 16 km sem þau þurfa að ferð­ast en nokkur börn þurfa að fara mun lengri vega­lengdir en það. Á góðum degi er ég um 13 mín­útur að keyra kafl­ann þar sem er mal­ar­vegur en sá tími tvö­fald­ast þegar veg­ur­inn er í slæmu standi. Það þýðir að þau börn sem þurfa að keyra hvað lengsta vega­lengd fara yfir þau tíma­mörk sem þeim er, lögum sam­kvæmt, heim­ilt að ferð­ast í bíl til að kom­ast í skóla. Þess fyrir utan er ferðin ömur­leg fyrir þau því bíll­inn hrist­ist alla leið­ina með til­heyr­andi óþæg­indum.“

Guðrún Ósk segir að heima­menn séu farnir að ræða mögu­legar mót­mæla­að­gerðir til að knýja fram breyt­ingar.

„Núna hefur komið upp umræða að halda börn­unum heima eða hrein­lega standa fyrir aðgerðum þar sem öðrum en heima­mönnum verður meinað að keyra um veg­inn. Við vitum ekki alveg hvað við getum gert til þess að stjór­mála­menn taki til gagn­gerar end­ur­skoð­unar for­gangs­röðun í vega­málum.“

Segir hún skilja það að víða þurfi að bæta úr í vega­kerfi lands­ins en þarna sé um að ræða börn sem þurfi að lifa við þessa hörm­ung.

„Við erum svo sann­ar­lega ekki þau einu sem erum að bíða eftir því að fá úrbætur en á meðan horfum við upp á upp­bygg­ingu á vegum þar sem ekki er sami umferð­ar­þungi og hjá okkur og ekki börn sem þurfa að kom­ast leiðar sinnar. Við viljum sjá að börnin okkar sem eru núna að byrja í leik- og grunn­skóla eigi von um að keyra við við­un­andi aðstæður en ekki að þessi hörm­ung bíði þeirra alla þeirra skóla­göngu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Landið

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Gistingin fór fram utandyra, en það var náttúra landsins sem stóð upp úr í upplifun ferðalanganna.
Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal