Fimmtudagur 28. mars, 2024
3.8 C
Reykjavik

Héraðsskjalasafn biður um hjálp við að leysa ráðgátu: „Uppruni myndarinnar nokkuð á huldu“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Héraðsskjalasafn Austfirðinga leitar upplýsinga um dularfulla ljósmynd sem það festi nýlega kaup á en hún var tekin á Seyðisfirði ár árunum milli 1887 og 1907.

Tilurð myndarinnar, hver tók hana og hvenær og hvers vegna er enn sem komið er nokkur ráðgáta að því er fram kemur á Facebook-síðu Stefáns Boga Sveinssonar forstöðumanns Héraðsskjalasafnins en Austurfrétt fjallaði um málið. Í færslunni segir að fyrir nokkru hafi safninu borist ábending um ljósmynd frá Seyðisfirði væri til sölu í gegnum vefsíðuna e-bay en ekki væri að finna þá mynd á ljósmyndasöfnum hérlendis. Eftr að hafa skoðað málið var tekin sú ákvörðun að kaupa myndina en seljandinn sérhæfir sig í sölu gamalla ljósmynda.

„Við ákváðum að kaupa þessa mynd enda var hún fáanleg á góðu verði, það er nokkrir þúsund kallar. Hinsvegar er uppruni myndarinnar nokkuð á huldu, það er hver tók hana og í hvaða tilgangi.“segir Stefán Bogi í samtali við Austurfrétt.

Segir Stefán að mögulega hafi myndin verið tekin í sérstakri ferð til Íslands eða jafnvel Grænlands með stoppi hér á landi.

„Við vitum þetta ekki núna en myndin er gott augnablik í sögu Austurlands á þessum tíma,“ segir Stefán.

- Auglýsing -

Ljósmyndin sýnir hóp hrossa með reiðtygjum við hús á Seyðisfirði sem var reist árið 1887 undir starfsemi Pöntunarfélags Fljótsdalshéraðs á svokölluðum Svendsengrunni við Hafnargötu, milli Þórshamars og Skipasmíðastöðvarinnar, að sögn Stefáns.

Húsið stóð þar til ársins 1907 að það var flutt og breytt töluvert mikið. Það stendur nú við Hafnargötu 10 og er jafnan kallað Múli. Frá þessu segir í Húsasögu Seyðisfjarðar.

„Myndin er lituð og á glerplötu, þeirrar gerðar sem á ensku nefnist „lantern slides“. Þetta voru nokkurskonar forverar síðari tíma slides-mynda og var varpað á sýningartjald. Á myndinni kemur fram að hún tilheyri American Museum of Natural History en safnið lét útbúa myndir af þessu tagi til að lána út í skóla sem kennsluefni en einnig fyrir opinbera fyrirlestra sem haldnir voru í safninu og voru geysivinsælir á tímabili.“

- Auglýsing -

Stefán Bogi hvetur þá sem hafa einhverjar upplýsingar um myndina að hafa samband.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -