Arna Magnea Danks
„Við erum bara fólk eins og annað fólk“
Arna Magnea Danks
Fólk

Björk Guð­munds­dóttir er ólétt

Peningar

Samherji hyggst reka vinnu­búðir með gist­ingu

Fólk

Selja fal­lega sveita­sælu í Ölfusinu með risa­stórri lóð

Minning

Svanur Jóhann­es­son er lát­inn

Innlent

Eft­ir­lýstur í átta mán­uði á Íslandi en finnst ekki

Innlent

Kona á fimm­tugs­aldri ákærð fyrir að aug­lýsa vændi á Akureyri

Innlent

MAST varar við neyslu á skinku frá Stjörnu­grís

Pólitík

Sakar Trygg­inga­stofnun um að veita rangar upp­lýs­ingar og sýna for­dóma

Heimur

Óvenju­leg inn­rás mar­íu­bjalla vekur óhug

Pólitík

Rússar undr­andi á Þorgerði Katrínu

Landlæknir er bjartsýnn á framtíð HSS: „Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða“

Landlæknir er bjartsýnn á framtíð HSS: „Það hefur verið mótvindur hér og erfið umræða“
Alma Möller Mynd / Hákon Davíð Björns­son

Alma Dagbjört Möller land­læknir var við­stödd opnun nýrrar röntgen­deildar hjá Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja, HSS, ásamt Willum Þór Þórssyni, heil­brigð­is­ráð­herra, í síð­ustu viku. Vík­ur­fréttir voru á staðnum og tók Ölmu tali.

„Það er ánægju­legt að hér á HSS hefur verið tekið til hend­inni og unnið að upp­bygg­ingu á innviðum stofn­un­ar­innar. Það er nauð­syn­legt því mikil fólks­fjölgun hefur orðið á svæð­inu und­an­farin ár sem kallar jú á aukna starf­semi og stærra hús­næði. Nú er komið að þeim tíma­mótum að fyrsti áfangi hús­næð­is­breyt­ing­anna er til­bú­inn sem er ný röntgen­deild. Hún var flutt til að vera við hlið­ina á nýrri slysa- og bráða­mót­töku en fram­kvæmdir við hana hefj­ast á næstu vikum,“ sagði Alma Dagbjört Möller land­læknir er ný röntgen­deild var form­lega opnuð á HSS í síð­ustu viku. Hvatti land­læknir starfs­fólk Heil­brigð­is­stofnun Suð­ur­nesja til að halda áfram á þeirri veg­ferð að efla þjón­ustu HSS, gæði hennar og öryggi.

„Það hefur verið mót­vindur hér og erfið umræða. Mig langar að segja það að það er mik­ill vilji til umbóta hjá stofn­un­inni. Það sé ég sem land­læknir því við höfum gert hér úttektir bæði á starf­semi heilsu­gæslu og legu­deildar. Það er mín trú að hér verði aukin gæði og aukið öryggi sjúk­linga. Svo má nefna það að það er afar mik­il­vægt að almenn­ingur, þar með talið stjórn­endur í sveit­ar­fé­lögum og þing­menn taki utanum stofn­un­ina og vinni með henni í þess­ari gæða- og umbóta­veg­ferð,“ segir Alma og á þá við umræð­una sem skap­ast hefur um stofn­un­ina um nokk­urt skeið, meðal ann­ars vegna and­láts níu sjúk­linga HSS sem dr. Skúli Tómas Gunn­laugs­son ann­að­ist og hefur nú rétt­ar­stöðu grun­aðra við rann­sókn máls­ins. Alma gaf Skúla tví­vegis starfs­leyfi til að vinna á Land­spít­al­anum, eftir að málið kom upp, þó með skil­yrðum.

Sjá einnig: Skúli er undir eft­ir­liti sér­fræð­inga spít­al­ans í lyf­lækn­ingum: „LSH fylgist með fram­vindu máls­ins“

„Það er verið að end­ur­bæta hús­næðið mjög og þetta er fyrsti áfangi að opna nýja og glæsi­lega röntgen­deild. Síðan verður haldið áfram með bráða­mót­töku og fleira. Þetta er afskap­lega mik­il­vægt því hús­næði er mik­il­vægur þáttur starfs­um­hverfis og hér hefur vantað á mönnun, ekki síst lækna. Mínar vonir eru að þetta geri stofn­un­ina eft­ir­sótt­ari vinnu­stað.“

Aðspurð um það hvaða leið­bein­ingar hún hafi verið með til stofn­un­ar­innar í ljósi alls sem á undan hefur gengið, svar­aði Alma á eft­ir­far­andi hátt:

„Við höfum brýnt fyrir stofn­un­inni að ráð­ast í þær umbætur sem þarf, því við höfum greint bæði styrk­leika og veik­leika. Það er mik­il­væg­ast þegar erfið umræða kemur upp er að hlusta og líta inná við á hvað þurfi að laga og vinda sér í það. Ég sé að það er vilji til umbóta en umbætur eru ekki hristar fram úr erminni, þær taka tíma og í raun­inni lýkur þeim aldrei. Mik­il­væg­ast er að hlusta og bregð­ast við eins og þarf.“

Varðandi fram­tíð HSS hefur Alma fulla trú á að þjón­ustan verði bætt.

„Ég hef fulla trú á því að hér verði bætt þjón­usta og það er mik­il­vægt. Við sjáum hvað íbúum hér hefur fjölgað og það er afar mik­il­vægt að bæta þjón­ust­una og stækka hús­næði eins og við erum að sjá hérna í dag.“

Land­lækn­is­emb­ættið gerði úttekt á HSS nýlega en meðal þess sem þarf að laga sam­kvæmt emb­ætt­inu er efl­ing mönn­unar.

„Það er bara eins og víð­ast hvar í heil­brigð­is­kerf­inu, það þarf að efla mönnun og það hjá flestum starfs­stéttum og ég nefni sér­stak­lega lækna. Það þarf að efla teym­is­vinnu og almennt gæða- og örygg­is­starf. Fleira mætti telja en þetta eru aðal­at­riðin.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

3
Minning

Helgi Ólafsson er fall­inn frá

Helgi Ólafsson, raf­virkja­meist­ari á Rauf­ar­höfn, lést á Dval­ar­heim­il­inu Hvammi 27. októ­ber, 97 ára að aldri. Morg­un­blaðið greindi frá and­láti hans. Helgi fædd­ist á Rauf­ar­höfn 31. maí 1929 og ólst þar upp. Hann lauk sveins­prófi í raf­virkjun árið 1950 og hlaut meist­ara­rétt­indi fimm árum síðar. Hann starf­aði við raf­virkjun alla starfsæv­ina, meðal ann­ars fyrir Síld­ar­verk­smiðjur rík­is­ins og SR-mjöl, auk þess að...

Mest lesið í vikunni

Heimur

Er Sabrina Pasterski næsti Einstein?

Eftir að hafa smíðað flugvél á unglingsárum rannsakar Sabrina Pasterski nú svarthol, þyngdarafl og eðli rúmtímans.
Innlent

Maður játar að hafa brotið rúður í nærri þrjá­tíu bílum á Sel­tjarn­ar­nesi

Innlent

Erfða­rann­sóknir á Íslend­ingum lyk­il­at­riði í þróun nýs megr­un­ar­lyfs

Innlent

Eyjan sem átti að hverfa árið 2020 stendur enn upp úr sjó

Pólitík

„Það var stór­kost­legt að vakna í morgun“

Landið

Landið

Sváfu undir berum himni og heill­uð­ust af íslenska hálend­inu

Gistingin fór fram utandyra, en það var náttúra landsins sem stóð upp úr í upplifun ferðalanganna.
Landið

Skortur á leik­skóla­plássum tefur end­ur­komu starfs­fólks HSA

Landið

Nál fannst í hrekkja­vökusúkkulaði á Akureyri

Landið

Límdu yfir hraða­mynda­vél lög­reglu

Landið

Breskur stór­mið­ill velur fimm stór­kost­leg­ustu fossa Íslands

Landið

Vilja vernda nátt­úruperlu í Skriðdal