Gísli Gunnarsson sóknarprestur í Glaumbæ í Skagafirði, hefur verið kjörinn vígslubiskup á Hólum.
Fram kemur hjá Feyki að í kynningarbréfi Gísla til kjörs segir „Það dýrmætasta sem kirkjan á er fólkið sem þar starfar með einum eða öðrum hætti. Fólk sem leggur fram krafta sína, yfirleitt í sjálfboðavinnu og stuðlar þannig að öflugu kirkjustarfi um land allt. Kirkjan er mikilvæg í hverju samfélagi og ekki síst í hinum dreifðu byggðum landsins. Það þarf að standa vörð um þá starfsemi og starf vígslubiskups er liður í því. Einnig þarf að sækja fram, ekki hvað síst í barna- og æskulýðsstafi kirkjunnar og efla það sem víðast á landinu.“
Gísli hlaut 62% atkvæða en sóknarpresturinn á Grenjaðastað, séra Þorgrímur Daníelsson fékk 36%. Fékk Gísli 316 atkvæði í kjörinu eða 62,36& en Þorgrímur 184 atkvæði en 9 tóku ekki afstöðu. Á kjörskrá voru 740 en 509 greiddu atkvæði eða 68,78%.