Laugardagur 20. apríl, 2024
9.1 C
Reykjavik

Nýtt merki Húnabyggðar valið: „Táknar hér hlýju, öryggi og samstöðu samfélagsins“

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Í gær var tilkynnt um val á nýju merki hins nýja sveitarfélags Húnabyggðar sem varð til er Blönduós sameinaðist Húnavatnshreppi fyrr á þessu ári. Alls bárust 50 tillögur frá 29 hönnuðum um byggðarmerki sveitarfélagsins. Það var Króksarinn Ólína Sif Einarsdóttir  sem átti hönnunina að vinningstilllögunni.

Í frétt á vef Húnabyggðar, sem Feykir fjallaði um kemur fram að valið hafi farið þannig fram að íbúum Húnabyggðar hafi gefist kostur á að taka þátt í könnun um að velja á milli fjögurra merkja sem matsnefnd hafði valið. Matsnefndina skipaði einn fulltrúi frá sveitarstjórn Húnabyggðar, fulltrúa frá FÍT og Hring Hafsteinsson, framkvæmdarstjóra Gagarín.

Hið glæsilega nýja merki Húnabyggðar
„Í rökstuðningi fyrir nafni nýja sveitafélagsins Húnabyggðar var vísað til þess að í Vatnsdælasögu segi frá því að landnámsmaðurinn Ingimundur hefði fundið hvítabjörn og tvo húna á Húnavatni og nefnt vatnið eftir því. Hönnuður telur því við hæfi að húnarnir tveir prýði skjaldamerkið en þeir tákna hér einnig sameiningu sveitafélaganna tveggja sem mætast í famlagi. En bjarnafaðmurinn táknar hér hlýju, öryggi og samstöðu samfélagsins. Í sama rökstuðningi var einnig bent á að forskeytið Húna- sé vel þekkt í örnefnum á svæðinu og því samofið sögu svæðisins. Það gefi því sterka vísbendingu um staðsetningu sveitafélagsins – sem er einmitt markmiðið að skjöldurinn geri, standi hann einn án nafns sveitafélagsins. Grunnflötur skjaldarins er blár – litur himins og hafs.“

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -