Fimmtudagur 28. mars, 2024
0.8 C
Reykjavik

Rýmingu aflétt að hluta í Neskaupsstað – Slæm veðurspá á morgun

VefTv

- Auglýsing -

Hlaðvörp

- Auglýsing -

Samkvæmt tilkynningu Lögreglunnar á Austurlandi var ákveðið á fundi með Veðurstofu Ísland í morgun, að aflétta rýminingu á svæði 18 í Neskaupsstað.

Fundur var með Veðurstofu í morgun þar sem staðan var metin á austfjörðum m.t.t. snjóflóðahættu og veðurs framundan. Ákveðið var að aflétta rýmingu á svæði 18 í Neskaupstað.

Hins vegar kemur fram í tilkynningunni að vegna aðstæðna á svæðinu og slæmrar veðurspár annað kvöld, verði ekki tekin ákvörðun um frekari afléttingu, að svo stöddu. Metur Veðurstofan aðstæður og breytist þær hvað rýmingu varðar, verður það tilkynnt.

Íbúum er heimilt að sækja vistir og annað frá heimilum sínum á rýmingarsvæði. Rétt þykir að nýta daginn í dag, í ljósi veðurspárinnar á morgun. Þeir sem hyggjast nýta sér það eru beðnir um að fara áður í björgunarsveitarhús á sínu svæði þar sem skráning fer fram og fylgd.

Athugasemdir

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. Mannlíf áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.
 

Lestu meira

- Auglýsing -

Veistu meira um málið?

Deila

Nýtt í dag

Mest lesið í vikunni

Raddir

Í fréttum er þetta helst...

- Auglýsing -